28. fundur
28. fundur
Leikskólanefnd Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
06.02.2014
Kl. 16:30 - 18:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Lúðvík Örn Steinarsson - formaður
- Ásta Hrafnhildur Garðarsdóttir - aðalmaður
- Heimir Erlingsson - aðalmaður
- Kristjana F Sigursteinsdóttir - aðalmaður
- Anna Magnea Hreinsdóttir - leikskólafulltrúi
- Ída Björg Unnarsdóttir - fulltrúi starfsmanna
- Lovísa Anna Pálmadóttir - fulltrúi foreldra
- Kristín Sigurbergsdóttir - fulltrúi leikskólastjóra
- Bergþóra Sigmundsdóttir - varamaður
Ritari
- Anna Magnea Hreinsdóttir
Dagskrá
Málsnúmer 1302428
01
Uppbygging leikskóla á næstu árum
Hjördís Ólafsdóttir leikskólastjóri Krakkakots, Sigrún Sigurðardóttir leikskólastjóri Akra og Ragnhildur Gunnlaugsdóttir aðstoðarleikskólastjóri Akra kynna hugmynd um aukið samstarf leikskólanna.$line$Einnig verður farið yfir stöðu á framkvæmdum vegna Flataskóla og Lundabóls.
Gestir fundarins kynntu tillögu að samstarf Akra og Krakkakots næsta vetur. Leikskólanefnd mælir með tillögunni og beinir henni til bæjarráðs til frekari afgreiðslu.$line$Farið yfir stöðuna á Flataskóla og Lundabóli, en verið er að vinna í að teikna upp breytingar í báðum skólunum.
Málsnúmer 1401659
02
Kynning á námsmatshefti fyrir leikskóla
Leiðbeiningar um námsmat í leikskólum sem unnið var á vegum Mennta- og menningarmálaráðuneytis kynntar.
Leiðbeiningar um námsmat í leikskólum sem leikskólafulltrúi Garðabæjar vann fyrir mennta- og menningarmálaráðuneytið kynntar.
Málsnúmer 1401166
03
Skólanámskrár leikskóla 2014
Endurskoðuð skólanámskrá Kirkjubóls ásamt umsögn foreldraráðs lögð fram.
Skólanámskrá Kirkjubóls lögð fram til kynningar og umræðu ásamt umsögn foreldraráðs. Skólanámskráin er skýr og vel unnin og lýsir vel áherslum Kirkjubóls í starfi sem byggja á fjölgreindarkenningu Gardner, uppeldi til ábyrgðar og á grunnþáttum menntunar samkvæmt aðalnámsskrá.
Málsnúmer 1302018
04
Umsókn um endurnýjun á leyfi til daggæslu barna í heimahúsi
Sótt er um framlengingu á leyfi til gæslu eins barns í hálft ár.
Eydís Guðrún Sigurðardóttir kt. 151056-2109 sækir um endurnýjun á leyfi til gæslu eins barns til 1. júlí 2014.$line$Leyfi veitt með fyrirvara um að öll gögn berist.
Málsnúmer 1401478
05
Umsókn um leyfi til daggæslu barna í heimahúsi
Sótt er um leyfi til gæslu eins barns í eitt ár.
Guðný Birna Guðnadóttir kt. 110793-2199 sækir um leyfi til gæslu eins barns í eitt ár.$line$Leyfi veitt með fyrirvara um að öll gögn berist.
Málsnúmer 1401523
06
Umsókn um leyfi til daggæslu barna í heimahúsi
Sótt er um leyfi til að gæta barnabarns í eitt ár.
Halla Sigríður Þorvaldsdóttir kt. 261239-2649 sækir um leyfi til gæslu eins barns í eitt ár.$line$Leyfi veitt með fyrirvara um að öll gögn berist.
Málsnúmer 1309514
07
Endurskoðun skólastefnu Garðabæjar
Kynning á vinnu við endurskoðun skólastefnu Garðabæjar.
Formaður gerði grein fyrir starfi stýrihóps um endurskoðun skólastefnu Garðabæjar sem nú stendur yfir.$line$Hugarflugskönnun hefur verið gerð meðal foreldra, kennara og nemenda og verða niðurstöður hennar kynntar á opnu skólaþingi mánudaginn 10. febrúar nk.