Skólanámskrár leikskóla 2014
Ferill máls
Leikskólanefnd Garðabæjar
01
31. fundur
Skólanámskrá Lundabóls ásamt umsögn foreldraráðs
Skólanámskrá Lundabóls lögð fram ásamt umsögn foreldraráðs. Einkunnarorð Lundabóls eru Hjarta, hugur og hönd og eru börnin miðpunktur starfsins. Skólanámskráin endurspeglar vel þær áherslur sem starf Lundabóls byggir á.
Leikskólanefnd Garðabæjar
02
31. fundur
Skólanámskrá Sjálands ásamt umsögn foreldraráðs
Skólanámskrá Sjálands lögð fram ásamt umsögn foreldraráðs. Í henni eru skilgreindir þeir verkferlar sem unnið er eftir í skólanum sem byggir starf sitt á fjölvísisstefnu í anda fjölgreindarkenningu Gardner.
Leikskólanefnd Garðabæjar
03
30. fundur
Skólanámskrá Krakkakots og umsögn foreldraráðs
Skólanámskrá náttúruleikskólans Krakkakots lögð fram ásamt umsögn foreldraráðs. Krakkakot leggur áherslu á að kynna náttúruna fyrir börnum og umhirðu dýra. Uppeldisstefnan Uppeldi til ábyrgðar er lögð til grundvallar með áherslu á jákvæð samskipti og gagnkvæma virðingu. Skólanámskráin lýsir vel því góða starfi sem fram fer í Krakkakoti.
Leikskólanefnd Garðabæjar
04
30. fundur
Umsögn foreldraráðs með skólanámskrá Ása
Umsögn foreldraráðs Ása um skólanámskrá leikskólans lögð fram. Telur foreldraráðið námskránna endurspegla vel þær áherslur sem lagðar eru í skólastarfi leikskólans og gefur skýra mynd af þeirri starfsemi sem þar fer fram.
Leikskólanefnd Garðabæjar
05
30. fundur
Skólanámskrá Akra og umsögn foreldraráðs
Skólanámskrá Akra ásamt umsögn foreldraráðs lögð fram og rædd. Á Ökrum eru gildin Virkni og vellíðan lögð til grundvallar. Leikskólinn hefur nú starfað í rúm tvö ár og hefur mótað sér stefnu í starfsháttum sem skólanámskráin endurspeglar vel. Starfshættirnir endurspegla hugmyndir um að börn læri með því að framkvæma í jákvæðum samskiptum í anda uppbyggingarstefnunnar. Skólanámskráin gerir starfsemi leikskólans góð skil og er vel sett fram.
Leikskólanefnd Garðabæjar
06
29. fundur
Skólanámskrá Holtakots
Skólanámskrá Holtakots ásamt umsögn foreldraráðs lögð fram og rædd. Holtakot er heilsuleikskóli með áherslu á hreyfingu, næringu og sköpun. Leikskólinn flaggar Grænfánanum og vinnur eftir uppbyggingastefnunni Uppeldi til ábyrgðar. Skólanámskráin lýsir vel því fjölbreytta starfi sem fram fer í leikskólanum.
Leikskólanefnd Garðabæjar
07
29. fundur
Skólanámskrá Bæjarbóls
Skólanámskrá Bæjarbóls ásamt umsögn foreldraráðs lögð fram og rædd. Bæjarból er elsti leikskólinn í Garðabæ og hefur verið heilsuleikskóli frá árinu 2010. Einkunnarorð leikskólans eru leikgleði, agi og lífsleikni og er þar lagt mikið upp úr góðum samskiptum. Skólanámskráin er skýr og framsetning til fyrirmyndar.
Leikskólanefnd Garðabæjar
08
29. fundur
Skólanámskrá Ása
Skólanámskrá Ása og Litlu Ása lögð fram. Afgreiðslu frestað til næsta fundar þar sem umsögn foreldraráðs fylgdi ekki með.
Leikskólanefnd Garðabæjar
09
28. fundur
Endurskoðuð skólanámskrá Kirkjubóls ásamt umsögn foreldraráðs lögð fram.
Skólanámskrá Kirkjubóls lögð fram til kynningar og umræðu ásamt umsögn foreldraráðs. Skólanámskráin er skýr og vel unnin og lýsir vel áherslum Kirkjubóls í starfi sem byggja á fjölgreindarkenningu Gardner, uppeldi til ábyrgðar og á grunnþáttum menntunar samkvæmt aðalnámsskrá.
Leikskólanefnd Garðabæjar
10
27. fundur
Skólanámskrá Hæðarbóls lögð fyrir leikskólanefnd ásamt umsögn foreldraráðs
Leikskólanefnd telur skólanámskrá Hæðarbóls áhugaverða og lýsandi fyrir það starf sem þar fer fram.$line$Skólanámskráin samþykkt.