31. fundur
31. fundur
Leikskólanefnd Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
08.05.2014
Kl. 16:30 - 16:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Lúðvík Örn Steinarsson - formaður
- Heimir Erlingsson - aðalmaður
- Kristjana F Sigursteinsdóttir - aðalmaður
- Kjartan Örn Sigurðsson - áheyrnarfulltrúi
- Anna Magnea Hreinsdóttir - leikskólafulltrúi
- Hafdís Guðný Jakobsdóttir - fulltrúi dagforeldra
- Lovísa Anna Pálmadóttir - fulltrúi foreldra
- Kristín Sigurbergsdóttir - fulltrúi leikskólastjóra
Ritari
- Anna Magnea Hreinsdóttir
Dagskrá
Málsnúmer 1401166
01
Skólanámskrár leikskóla 2014
Skólanámskrá Lundabóls ásamt umsögn foreldraráðs
Skólanámskrá Lundabóls lögð fram ásamt umsögn foreldraráðs. Einkunnarorð Lundabóls eru Hjarta, hugur og hönd og eru börnin miðpunktur starfsins. Skólanámskráin endurspeglar vel þær áherslur sem starf Lundabóls byggir á.
Málsnúmer 1401166
02
Skólanámskrár leikskóla 2014
Skólanámskrá Sjálands ásamt umsögn foreldraráðs
Skólanámskrá Sjálands lögð fram ásamt umsögn foreldraráðs. Í henni eru skilgreindir þeir verkferlar sem unnið er eftir í skólanum sem byggir starf sitt á fjölvísisstefnu í anda fjölgreindarkenningu Gardner.
Málsnúmer 1404414
03
Viðhorfskönnun dagforeldrar 2014
Niðurstöður könnunar á viðhorfum foreldra barna hjá dagforeldrum í Garðabæ
Farið yfir niðurstöður árlegrar könnunar á viðhorfum foreldra sem eru með börn hjá dagforeldrum. Almenn ánægja ríkir um störf dagforeldra í Garðabæ. Helst má bæta upplýsingar til foreldra um mataræði barnanna. Nefndin fagnar að öðru leyti niðurstöðum könnunarinnar sem sýnir mikilvægi þjónustu dagforeldra í bæjarfélaginu.
Málsnúmer 1311354
04
Tillaga um að taka upp viðræður við ríkið um rekstur Fjölbrautaskólans í Garðabæ
Erindi vísað frá bæjarráði
Skýrsla Gunnlaugs Sigurðssonar og Þorsteins Þorsteinssonar um viðræður um hvort og með hvaða hætti Garaðbær taki að sér rekstur Fjölbrautarskólans í Garðabæ lögð fram og rædd. Rætt var um fljótandi skil milli leikskóla og grunnskóla og samfellu í námi barna óháð skólastigum.
Málsnúmer 1405051
05
Samantekt á störfum leikskólanefndar 2010-2014
Yfirlit yfir stefnumótun nefndarinnar
Formaður fór yfir helstu atriði í stefnumótun nefndarinnar á kjörtímabilinu. Frá árinu 2010 hefur börnum í Garðabæ á leikskólaaldri fjölgað um 130 auk 172 barna á Álftanesi eða um rúmlega 300. Opnaður hefur verið nýr leikskóli í Akrahverfinu, leikskóladeild hefur tekið til starfa í Sjálandsskóla og í Flataskóla og Litlu Ásar hafa flutt í nýtt húsnæði. Einnig hefur verið hafinn undirbúningur að stækkun Litlu Ása og Lundabóls auk undirbúnings að nýjum samreknum leik- og grunnskóla í Urriðaholti. Formaður þakkaði nefndarmönnum gott starf og góða samvinnu.
Málsnúmer 1401167
06
Kynningar og önnur mál 2014
Rætt um með hvaða hætti foreldra komi að starfi leikskóla svo sem með foreldraframlagi eða í afleysingar. Leikskólafulltrúa falið að móta verklagsreglur í samráði við leikskólastjóra.