Samantekt á störfum leikskólanefndar 2010-2014
Málsnúmer 1405051
Ferill máls
Leikskólanefnd Garðabæjar
01
31. fundur
Yfirlit yfir stefnumótun nefndarinnar
Formaður fór yfir helstu atriði í stefnumótun nefndarinnar á kjörtímabilinu. Frá árinu 2010 hefur börnum í Garðabæ á leikskólaaldri fjölgað um 130 auk 172 barna á Álftanesi eða um rúmlega 300. Opnaður hefur verið nýr leikskóli í Akrahverfinu, leikskóladeild hefur tekið til starfa í Sjálandsskóla og í Flataskóla og Litlu Ásar hafa flutt í nýtt húsnæði. Einnig hefur verið hafinn undirbúningur að stækkun Litlu Ása og Lundabóls auk undirbúnings að nýjum samreknum leik- og grunnskóla í Urriðaholti. Formaður þakkaði nefndarmönnum gott starf og góða samvinnu.