Beint í efni

Tillaga um að taka upp viðræður við ríkið um rekstur Fjölbrautaskólans í Garðabæ

Málsnúmer 1311354

Ferill máls

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

01

1. fundur

Skýrsla um rekstur FG

Lögð fram til kynningar skýrsla Gunnlaugs Sigurðssonar og Þorsteins Þorsteinssonar vegna samþykktar bæjarstjórnar Garðabæjar um að taka upp viðræður við mennta og menningarmálaráðuneytið um rekstur FG.

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

02

35. fundur

Erindi vísað til skólanefndar frá bæjarráði

Skýrsla Gunnlaugs Sigurðssonar og Þorsteins Þorsteinssonar tekin til umræða. Umræður um fljótandi skólaskil og framkvæmd þeirra m.a. rætt um hvort ástæða sé til að taka nemendur inn í fyrsta bekk tvisvar á ári. Skólanefnd lítur innihald skýrslunnar jákvæðum augum og telur margt af því sem þar er nefnt þegar vera komið til framkvæmda eða koma til framkvæmda með nýrri skólastefnu sem samþykkt hefur verið í bæjarstjórn. Skýrslunni er vísað til frekari umræðu í nýrri skólanefnd.

Leikskólanefnd Garðabæjar

03

31. fundur

Erindi vísað frá bæjarráði

Skýrsla Gunnlaugs Sigurðssonar og Þorsteins Þorsteinssonar um viðræður um hvort og með hvaða hætti Garaðbær taki að sér rekstur Fjölbrautarskólans í Garðabæ lögð fram og rædd. Rætt var um fljótandi skil milli leikskóla og grunnskóla og samfellu í námi barna óháð skólastigum.

Bæjarráð Garðabæjar

04

16. fundur

Bæjarráð samþykkir að vísa skýrslunni til umfjöllunar skólanefndar og leikskólanefndar.

Bæjarráð Garðabæjar

05

14. fundur

Bæjarstjóri lagði fram og kynnti skýrsluna.$line$$line$Afgreiðslu frestað.