14. fundur
14. fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
08.04.2014
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Erling Ásgeirsson - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
- Stefán Snær Konráðsson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Kristinn Guðlaugsson - áheyrnarfulltrúi
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
01
Bréf Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. varðandi arðgreiðslu vegna ársins 2013, dags. 02.04.14.
Í bréfinu kemur fram að samþykkt hafi verið á aðalfundi Lánasjóðs sveitarfélaga ohf,. að greiða út arð til hluthafa að fjárhæð kr. 350 mkr. Hlutur Garðabæjar er 3,764% eða sem nemur kr. 13.475.120.
02
Samkomulag Sambands ísl. sveitarfélaga og Sjúkraliðafélags Íslands um sérákvæði við kjarasamning, dags. 03.04.14.
Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti samkomulag Sambands ísl. sveitarfélaga og Sjúkraliðafélags Íslands vegna sjúkraliða sem starfa á Ísafold.
03
Bréf umhverfisnefndar varðandi umsókn Arctic Seafood um skeldýrarækt í Skerjafirði, dags. 02.04.14.
Bæjarráð samþykkir umsögn umhverfisnefndar og felur bæjarstjóra að senda hana til Matvælastofnunar.
04
Bréf umhverfisnefndar varðandi vistvang og staðarval fyrir gas- og jarðgerðarstöð, dags. 02.04.14.
Lagt fram.
05
Afgreiðsla byggingarfulltrúa vegna umsóknar um byggingarleyfi fyrir Nýhöfn 13, dags. 02.04.14.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa um endurnýjun á byggingarleyfi fyrir framkvæmdum við Nýhöfn 13.
06
Afgreiðsla byggingarfulltrúa vegna umsóknar um byggingarleyfi fyrir Smáraflöt 16, dags. 02.04.14.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa um að veita byggingarleyfi vegna viðbyggingar og breytinga á innra skipulagi við Smáraflöt 16.
07
Afgreiðsla byggingarfulltrúa vegna umsóknar um byggingarleyfi fyrir Nýjöfn 2-6, dags. 02.04.14.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa um að veita leyfi vegna lagfæringa á þakkanti o.fl. við Nýhöfn 2-6.
08
Afgreiðsla byggingarfulltrúa vegna umsóknar um byggingarleyfi vegna breytignar við Kríunes 16, dags. 07.4.14.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa um að veita byggingarleyfi vegna útlitsbreytinga við Kríunes 16.
09
Tillaga bæjarfulltrúa Páls Hilmarssonar varðandi niðurlagningu á embætti sýslumannsins í Hafnarfirði.
Bæjarstjóri upplýsti um umræðu um málið innan stjórnar SSH og lagði til að fresta afgreiðslu tillögunnar að svo stöddu.$line$$line$Bæjarráð samþykkir tillögu bæjarstjóra um að fresta afgreiðslu tillögunnar.
10
Framlög til stjórnmálaflokka 2014.
Samkvæmt fjárhagsáætlun 2014 nemur framlag til stjórnmálaflokka kr. 3.500.000.$line$$line$Bæjarráð samþykkir að á fyrri hluta ársins komi til greiðslu á kr. 1.603.000 sem skiptist með eftirfarandi hætti.$line$$line$ Framsóknarflokkur kr. 86.367$line$ Sjálfstæðisflokkur kr. 1.017.418$line$ Samfylkingin kr. 244.401$line$ Fólkið í bænum kr. 254.814$line$$line$Bæjarráð samþykkir jafnframt að komi fram ný framboð við sveitarstjórnarkosningarnar í vor mun verða tekin til afgreiðslu sérstök styrkveiting til þeirra.
11
Bréf Sævars Þórs Jónssonar hdl. varðandi tjón á fasteigninni Goðatún 25, dags. 28.03.14.
Bæjarráð felur Andra Árnasyni hrl., að gæta hagsmuna bæjarins í málinu.
12
Bréf Sævars Þórs Jónssonar, hdl. varðandi tjón á fasteigninni Goðatún 32. dags. 28.03.14.
Bæjarráð felur Andra Árnasyni hrl., að gæta hagsmuna bæjarins í málinu.
13
Bréf Sævars Þórs Jónssonar, hdl. varðandi tjón á fasteigninni Faxatún 2, dags. 28.03.14.
Bæjarráð felur Andra Árnasyni hrl., að gæta hagsmuna bæjarins í málinu.
14
Skýrsla vegna samþykktar bæjarstjórnar á tillögu um að taka upp viðræður við ríkið um rekstur Fjölbrautaskólans í Garðabæ.
Bæjarstjóri lagði fram og kynnti skýrsluna.$line$$line$Afgreiðslu frestað.