Bréf umhverfisnefndar varðandi umsókn Arctic Seafood um skeldýrarækt í Skerjafirði, dags. 02.04.14.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
14. fundur
Bæjarráð samþykkir umsögn umhverfisnefndar og felur bæjarstjóra að senda hana til Matvælastofnunar.
Umhverfisnefnd Garðabæjar
02
39. fundur
Erindi MAST dags. 3.03.14 tekið fyrir á 38. fundi.$line$Páll Stefánsson frá Heilbrigðiseftirliti.
Nefndin telur umbeðið svæði framundan fjörum Álftanes óheppilegt í marga staði t.d. er svæðið nýtt í neyðarlosun útrásar fráveitu frá Garðabæ og Kópavogi. Því gæti ræktun til manneldis orðið fyrir mengun og tjóni af þeim völdum. Slík ræktun í sjó ætti að staðsetja fjarri þéttbýli.$line$$line$Umhverfisnefnd hafnar erindi um tilrauna skeldýrarækt í Skerjafirði, enda svæðið í friðlýsingarferli.
Umhverfisnefnd Garðabæjar
03
38. fundur
Erindi Matvælastofu 03.03.14 þar sem leitað er umsagnar á umsókn Arctic Seafood ehf. um tilraunir á skeldýrarækt í Skerjafirði.
Erindinu frestað til næsta fundar nefndarinnar, óskað frekari upplýsinga.