39. fundur
39. fundur
Umhverfisnefnd Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
01.04.2014
Kl. 17:00 - 19:15
Um fundinn
Nefndarmenn
- Júlía Guðrún Ingvarsdóttir - formaður
- Þorsteinn Þorsteinsson - aðalmaður
- Jón Bjarni Þorsteinsson - aðalmaður
- Sigurbjörn Ingimundarson - aðalmaður
- Sigríður Erla Jónsdóttir - aðalmaður
- Elías Jakob Bjarnason - áheyrnarfulltrúi
Ritari
- Erla Bil Bjarnardóttir
Dagskrá
Málsnúmer 1403034
01
Umsókn Arctic Seafood um skeldýrarækt í Skerjafirði
Erindi MAST dags. 3.03.14 tekið fyrir á 38. fundi.$line$Páll Stefánsson frá Heilbrigðiseftirliti.
Nefndin telur umbeðið svæði framundan fjörum Álftanes óheppilegt í marga staði t.d. er svæðið nýtt í neyðarlosun útrásar fráveitu frá Garðabæ og Kópavogi. Því gæti ræktun til manneldis orðið fyrir mengun og tjóni af þeim völdum. Slík ræktun í sjó ætti að staðsetja fjarri þéttbýli.$line$$line$Umhverfisnefnd hafnar erindi um tilrauna skeldýrarækt í Skerjafirði, enda svæðið í friðlýsingarferli.
Málsnúmer 1403558
02
Vatnsvernd á höfuðborgarsvæðinu - heildarendurskoðun
Kynning á tillögu á vinnslustigi, frá svæðisskipulagsstjóra SSH dags. 24.03.14 $line$Eysteinn Haraldsson bæjarverkfræðingur og Páll Stefánsson kynna fyrir nefndinni.
Nefndarmenn þakka ákaflega greinargóða og fræðandi kynningu.
Málsnúmer 1402245
03
Hreinsunarátak 2014
Verkefnið er víðtækara í ár en verið hefur;$line$1. "Höldum bænum okkar hreinum" er hvatingarpistill nefndarinnar til bæjarbúa birtur í Garðapóstinum 3. apríl að taka svæði í nærumhverfi sínu í fóstur.$line$2.Fjölnota burðarpokar á hvert heimili, hvetur íbúa til að draga úr notkun á plastburðarpokum við innkaup.
Nefndin er ánægð með framgang og eftirfylgni verkefnisins.
Málsnúmer 1309195
04
Trjágróður í Garðabæ
Fræðslufundur 31. mars sl. um umhirðu trjágróðurs og tegundaval í görðum. Fyrirlesarar Magnús Bjarklind landlagstæknir og Baldur Gunnlaugsson garðyrkjutæknir. Haldinn í Safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli kl.20:00 - 22:00.
Nefndin lýsir ánægju með nýafstaðinn fræðslufund.$line$Fræðsluerindin verða sett upp á www.gardabaer.is aðgengileg öllum.
Málsnúmer 1403518
05
Vistvangur og staðarval gas- og jarðgerðarstöðvar fyrir höfuðborgarsvæðið
Erindi Samtaka Gróður fyrir fólk dags. 20.03.14 vísað frá bæjarráði til umfjöllunar í umhverfisnefnd 25. mars sl.
Umhverfisnefnd getur ekki tekið afstöðu um staðarval innan lögsögu annarra bæjarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.$line$Nefndin telur þetta erindi eigi heima við endurskoðun svæðisskipulags höfuðborgarsvæðisins.