Beint í efni

Hreinsunarátak 2014

Málsnúmer 1402245

Ferill máls

Umhverfisnefnd Garðabæjar

01

40. fundur

Unnið hefur verið að markmiðum um snyrtilegasta bæinn.:$line$1. "Temdu þér taupoka" er átak til að minnka notkun plastpoka í bænum og því fékk hvert heimili taupoka til innkaupa, í stað plastburðarpoka.$line$2. Hreinsun í nærumhverfi. Í hreinsunarátakinu sem er árlegt tekur fólk sig saman um að hreinsa til í sínu nærumhverfi. Þar eru að verki t.d. nágrannar, skólar, félagasamtök og allir hvattir til þátttöku.$line$3. Vorhreinsun lóða, þar sem starfsmenn bæjarins fjarlægja garðaúrgang frá lóðum bæjarbúa.

Umhverfisnefnd er ánægð með verkefnin sem staðið hafa í apríl og maí með góðri þátttöku íbúa þ.á.m. tóku tuttugu hópar þátt í að tína rusl í bæjarlandinu.$line$Taupokarnir fengu góðar viðtökur bæjarbúa.$line$$line$Ákveðið er að halda áfram verkefninu að hreinsa til í nærumhverfinu.$line$$line$Nefndin hefur áhyggjur af söfnum númerslausra bíla á lóðum, vinna þarf í að að sporna gegn því, enda mikið umhverfislýti. $line$$line$Nefndin mun koma þeim tilmælum á framfæri við umhverfisnefnd 2014-2018 að unnið verði að samræmdum aðgerðum til að sporna við miklum sóðaskap á lóðum í bænum.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

02

39. fundur

Verkefnið er víðtækara í ár en verið hefur;$line$1. "Höldum bænum okkar hreinum" er hvatingarpistill nefndarinnar til bæjarbúa birtur í Garðapóstinum 3. apríl að taka svæði í nærumhverfi sínu í fóstur.$line$2.Fjölnota burðarpokar á hvert heimili, hvetur íbúa til að draga úr notkun á plastburðarpokum við innkaup.

Nefndin er ánægð með framgang og eftirfylgni verkefnisins.

Bæjarráð Garðabæjar

03

11. fundur

Lagt fram til kynningar.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

04

38. fundur

Tekið fyrir skipulag vorhreinsunar á bæjarlandinu.

1. Hreinsunarátak á nærumhverfi með þátttöku bæjarbúa, félaga og skóla, verði á tímabilið 1. - 15. apríl.$line$2. Plastpokalaus vika í Garðabæ, þá verður burðarpokum úr taui dreift á hvert heimili í bænum.$line$3. Vorhreinsun lóða vikuna 9. - 16. maí.$line$4. Höldum bænum okkar hreinum, langtímaverkefni sem biðlar til íbúa að taka svæði í nærumhverfi sínu í fóstur.$line$$line$Verkefnið verður kynnt með útgáfu bæklings sem dreift verður á hvert heimili í bænum og í Garðapóstinum.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

05

37. fundur

Hreinsunarátak með hvatningarstyrkjum til hópa sem hreinsa til í nærumhverfinu er dagana 1. - 15. apríl. Sótt er um þátttöku hjá umhverfisstjóra sem úthlutar svæðum. Að verki loknu hirða starfsmenn bæjarins upp eftir hópana og þátttakendur fá hvatningastyrk.$line$Vorhreinsun lóða verður dagana 9. - 16. maí þ.e. þjónusta við garðeigendur að fjarlægja garðaúrgang frá lóðum.

Hreinsunarátakið og vorhreinsun lóða verður auglýst í upplýsingabæklingi sem dreift verður á hvert heimili í lok mars og kynnt í Garðapóstinum. $line$$line$Nefndin hyggst fylgja verkefninu eftir að hópar og félög taki svæði í sínu nærumhverfi í fóstur.