Beint í efni

38. fundur

11.03.2014
Umhverfisnefnd Garðabæjar

38. fundur

Umhverfisnefnd Garðabæjar

í miðrými 3. hæð á bæjarskrifstofum Garðabæjar við Garðatorg

11.03.2014

Kl. 17:00 - 19:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Júlía Guðrún Ingvarsdóttir - formaður
  • Þorsteinn Þorsteinsson - aðalmaður
  • Jón Bjarni Þorsteinsson - aðalmaður
  • Sigurbjörn Ingimundarson - aðalmaður
  • Sigríður Erla Jónsdóttir - aðalmaður
  • Erla Bil Bjarnardóttir - umhverfisstjóri

Ritari

  • Erla Bil Bjarnardóttir

Dagskrá

Málsnúmer 1403034

01

Umsókn Arctic Seafood um tilraunaleyfi í Skerjafirði

Erindi Matvælastofu 03.03.14 þar sem leitað er umsagnar á umsókn Arctic Seafood ehf. um tilraunir á skeldýrarækt í Skerjafirði.

Erindinu frestað til næsta fundar nefndarinnar, óskað frekari upplýsinga.

Málsnúmer 1309195

02

Trjágróður í Garðabæ

Farið yfir stöðu verkefnisins og skipulag framundan.

Eftirfylgni verkefnisins "trjágróður í Garðabæ" er eftirfarandi:$line$1. Markmið og upplýsingar birt á www.gardabaer.is$line$2. Grein, markmiðin og fræðsla á opnu í Garðapóstinum 13. mars sl.$line$3. Umhverfisnefnd býður uppá námskeið þann 31. mars nk. í samstarfi við Skógræktarfélag Garðabæjar.

Málsnúmer 1402245

03

Hreinsunarátak 2014

Tekið fyrir skipulag vorhreinsunar á bæjarlandinu.

1. Hreinsunarátak á nærumhverfi með þátttöku bæjarbúa, félaga og skóla, verði á tímabilið 1. - 15. apríl.$line$2. Plastpokalaus vika í Garðabæ, þá verður burðarpokum úr taui dreift á hvert heimili í bænum.$line$3. Vorhreinsun lóða vikuna 9. - 16. maí.$line$4. Höldum bænum okkar hreinum, langtímaverkefni sem biðlar til íbúa að taka svæði í nærumhverfi sínu í fóstur.$line$$line$Verkefnið verður kynnt með útgáfu bæklings sem dreift verður á hvert heimili í bænum og í Garðapóstinum.

Málsnúmer 1403049

04

Fuglalíf í fjörum og tjörnum Álftanesi

Lögð fram verkáætlun um rannsókn á "fuglalífi í fjörum og tjörnum á Álftanesi" frá Jóhanni Óla Hilmarssyni og Ólafi Einarssyni dags. 10. mars 2014.

Umhverfisnefnd samþykkir áætlunina þannig að fuglatalningar fari fram 2014, en úrvinnsla og skýrsluskil janúar 2015.

Málsnúmer 1403066

05

Vegprestar og fræðsluskilti við reiðleiðir

Erindi Hestamannafélagsins Spretts tekið fyrir að beiðni bæjarstjóra um merkingar við reiðleiðir.

Umhverfisnefnd sendir umsögn til bæjarstjóra.

Málsnúmer 1304682

06

Aðkoma að bæjarmörkum

Umhverfisnefnd hefur haft hug á að innkomur á mörkum bæjarfélagsins séu aðlaðandi.

Nefndin óskar eftir að undirbúningur þessa hefjist sem fyrst.