Fuglalíf í fjörum og tjörnum Álftanesi
Ferill máls
Umhverfisnefnd Garðabæjar
01
11. fundur
Fræðslufundur miðvikudaginn 15. apríl kynning Jóhanns Óla Hilmarssonar og Ólafs Einarssonar á skýrslu um Fuglalíf á Álftanesi. Haldinn á Bjarnastöðum og hefst kl.20:00 í beinu framhaldi af fundi nefndarinnar.
Ákveðið er að bjóða nemendum Álftanesskóla útikennslu þann 7. maí um fuglalíf á Álftanesi.
Umhverfisnefnd Garðabæjar
03
10. fundur
Jóhann Óli Hilmarsson og Ólafur Einarsson kynntu rannsóknarskýrslu um rannsókn á fuglalífi á Álftanesi sem þeir framkvæmdu árið 2014.
Mikil ánægja er með þessa rannsókn og fróðlega skýrslu þeirra félaga, sem sett verður á www.gardabaer.is$line$$line$Fyrirhugað er að kynna rannsóknina fyrir íbúum og öðrum áhugasömum í samstarfi við Fugla og náttúruverndarfélag Álftaness.$line$$line$Útikennsla um fuglalíf á Nesinu fyrir nemendur Álftanesskóla verður í boði nefndarinnar um fartíma fugla í apríl.
Umhverfisnefnd Garðabæjar
04
38. fundur
Lögð fram verkáætlun um rannsókn á "fuglalífi í fjörum og tjörnum á Álftanesi" frá Jóhanni Óla Hilmarssyni og Ólafi Einarssyni dags. 10. mars 2014.
Umhverfisnefnd samþykkir áætlunina þannig að fuglatalningar fari fram 2014, en úrvinnsla og skýrsluskil janúar 2015.