11. fundur
11. fundur
Umhverfisnefnd Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
15.04.2015
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Jóna Sæmundsdóttir - formaður
- Jóhann Gunnar Jóhannsson - aðalmaður
- Berglind Birgisdóttir - aðalmaður
- Huginn Freyr Þorsteinsson - aðalmaður
- Erling Jóhannesson - aðalmaður
- Erla Bil Bjarnardóttir - umhverfisstjóri
Ritari
- Erla Bil Bjarnardóttir
Dagskrá
01
Hreinsunarátak 2015 - snyrtilegur bær
Vorhreinsun 2015$line$1. Hreinsunarátak 10. - 24. apríl$line$2. Vorhreinsun lóða 27.apríl - 13. maí$line$$line$Auglýsing birt í Garðapóstinum fyrir og eftir páska.$line$Kynningarbæklingi dreift á hvert heimili þann 8. apríl. Bæklingurinn inniheldur ofangreint ásamt upplýsingum um skólagarða, matjurtagarða, gróður á lóðamörkun,að leggja ekki bílum á graseyjar, hirða upp eftir hunda og hvatning að hafa safnhaugakassa í garðinum til að minnka notkun á plastpokum.$line$$line$
Áætlunin samþykkt.
02
Söguskilti um Skansinn - fræðsluganga
Tillaga Ragnheiðar Traustadóttur fornleifafræðings að texta, kortum og myndum að fræðslu- og söguskilti, ásamt hönnun skiltisins frá Árna Tryggvasyni.
Tillagan kynnt. Fyrirhuguð er fræðsluganga laugardaginn 16. maí út á Skansinn með leiðsögn Ragnheiðar Traustadóttur og afhjúpa fræðsluskiltið.
03
Fuglalíf í fjörum og tjörnum Álftanesi
Fræðslufundur miðvikudaginn 15. apríl kynning Jóhanns Óla Hilmarssonar og Ólafs Einarssonar á skýrslu um Fuglalíf á Álftanesi. Haldinn á Bjarnastöðum og hefst kl.20:00 í beinu framhaldi af fundi nefndarinnar.
Ákveðið er að bjóða nemendum Álftanesskóla útikennslu þann 7. maí um fuglalíf á Álftanesi.
04
Vífilsstaðavatn - rannsóknarleyfi
Beiðni frá Veiðimálastofnun 26. mars 2015 um að veiða bleikju til sýnatöku vegna rannsókna á nýrnasýki í samstarfi við Fisksjúkdómadeild Keldna.
Samþykkt.
05
Vífilsstaðavatn - veiðileyfi 2015
Veiðitímabil í Vífilsstaðavatn hófst 1. apríl og er til 15. september. Veiðileyfi eru með veiðikortinu. Kynnt á vef www.gardabaer.is
Lagt fram.
06
Trjágróður á lóðamörkum 2015
Garðyrkjustjóri hefur lokið árlegri könnun á trjágróðri á lóðamörkum sem slútir út yfir gangstéttar og stíga.
Málið kynnt og ánægulegt að jákvæð eftirfylgni skuli bera árangur.
07
Handbók fyrir sumarstarfsfólk garðyrkju, vinnuskóla og umhverfisstjóra
Til kynningar vinnuleiðbeiningar og hagnýtar upplýsingar fyrir sumarstarfsfólk Garðabæjar, unnið af EFLU ráðgjöf fyrir garðyrkjustjóra, vinnuskólann og umhverfisstjóra. Leibeiningarnar verða settar upp á www.gardabaer.is eru þær ætlaðar flokkstjórum við sumarstörf hjá Garðabæ.
Lagt fram.
08
Fundargerðir 2014 - 2018 - Reykjanesfólkvangur
Fundargerð stjórnar Reykjanesfólkvangs 11. mars 2015.
Lögð fram.
09
Ráðstefna - Minni sóun, meiri hagkvæmni
Frá ráðstefnu Minni sóun, meiri hagkvæmni á vegum Sambands íslenskra sveitarfélaga, haldin 19. mars sl.
Formaður fjallaði um samanburð sveitarfélaga sem kom fram á ráðstefnunni varðandi áherslur og árangur í meðhöndlun úrgangs.$line$Nefndin er sammála um mikilvægi málsins og stefna að frekari árangri.
10
Lífrænn úrgangur, bætt nýting, minni sóun - ráðstefna
Frá ráðstefnu um Lífrænan úrgang, bætta nýtingu, minni sóun á vegum Landgræðslu ríkisins þann 20. mars sl.
Umhverfisstjóri kynnti innihald ráðstefnunnar.
11
Ársfundur Náttúrufræðistofnunnar
Frá ársfundi Náttúrufræðistofnunnar haldinn þann 27. mars sl.
Kynnt.
12
Samgönguvika 2015
Frá undirbúningsfundi Evrópsku samgönguvikunnar í Umhverfisráðuneyti þann 15. apríl.
Samgönguvika 2015 er 16. - 22. september.
13
Samráðshópur um Staðardagskrá 21 - 2014
Frá fundi samráðshóps um Staðardagskrá 21, haldinn í Garðabæ 9. apríl.
Lagt fram.
14
Íbúafundur umhverfisnefndar
Nefndin fyrirhugar að halda íbúafund um nærumhverfi þriðjudaginn 12. maí.
Skipulag fundarins rætt.