Söguskilti um Skansinn - fræðsluganga
Ferill máls
Umhverfisnefnd Garðabæjar
01
29. fundur
Söguskilti um Bessastaðaskans var afhjúpað þann 12. nóvember af Guðna Th. Jóhannessyni forseta og Gunnari Einarssyni bæjarstjóra.
Boðið var upp á sögugöngu í leiðsögn Ragnheiðar Traustadóttur fornleifafræðings. Gunnar Valur Gíslason forseti bæjarstjórnar flutti ávarp með fróðleik um Bessastaði sem fór fram innan virkisveggja Skansins. Göngufólki var veitt heitt kakó í kalsa veðri.
Ánægjulegt að söguskiltið skuli vera komið upp við Skansinn.
Fylgiskjöl
Umhverfisnefnd Garðabæjar
02
15. fundur
Söguskilti við Skansinn á Álftanesi er enn í vinnslu.
Lögð fram drög að texta að söguskilti við Selgjá eftir Ragnheiði Traustadóttur, fornleifafræðing.
Umhverfisnefnd Garðabæjar
03
12. fundur
Lögð fram drög að texta og hönnun söguskiltis við Skansinn á Álftanesi.
Drögin samþykkt, verkefnið er áfram í vinnslu.
Umhverfisnefnd Garðabæjar
04
11. fundur
Tillaga Ragnheiðar Traustadóttur fornleifafræðings að texta, kortum og myndum að fræðslu- og söguskilti, ásamt hönnun skiltisins frá Árna Tryggvasyni.
Tillagan kynnt. Fyrirhuguð er fræðsluganga laugardaginn 16. maí út á Skansinn með leiðsögn Ragnheiðar Traustadóttur og afhjúpa fræðsluskiltið.