15. fundur
12.08.2015
Umhverfisnefnd Garðabæjar
15. fundur
Umhverfisnefnd Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
12.08.2015
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Jóna Sæmundsdóttir - formaður
- Jóhann Gunnar Jóhannsson - aðalmaður
- Huginn Freyr Þorsteinsson - aðalmaður
- Erling Jóhannesson - aðalmaður
Starfsmenn
- Erla Bil Bjarnardóttir - umhverfisstjóri
Ritari
- Erla Bil Bjarnardóttir
Dagskrá
Málsnúmer 1508080
01
Skýrsla umhverfishópa 2015
Starfskýrsla umhverfishópa sumarið 2015 kynnt fyrir nefndinni.
Umhverfisnefnd vísar skýrslunni til bæjarráðs, nefndin styður framtíðarsýn umhverfisstjóra við skipulag frístundar fatlaðra.
Málsnúmer 1504032
02
Söguskilti um Skansinn - fræðsluganga
Söguskilti við Skansinn á Álftanesi er enn í vinnslu.
Lögð fram drög að texta að söguskilti við Selgjá eftir Ragnheiði Traustadóttur, fornleifafræðing.
Málsnúmer 1406302
03
Hænsnahald í Garðabæ
Lögð fram ný samþykkt um hænsnahald í Mosfellsbæ, utan skipulagðra landbúnaðarsvæða.
Nefndin leggur til að umhverfisstjóri vinni tillögu að samþykkt um hænsnahald í Garðabæ í samstarfi við Heilbrigðiseftirlitið.