Beint í efni

Nærumhverfið skiptir okkur máli

Málsnúmer 1504063

Ferill máls

Umhverfisnefnd Garðabæjar

01

14. fundur

Niðurstöður íbúafundar undir heiti Nærumhverfið skiptir okkur máli - stöndum saman og tökum ábyrgð, haldinn í Safnaðraheimili Kirkjuhvoli 12. maí 2015 verði birtar á vef Garðabæjar ásamt flokkun ábendinga niður í málaflokka.
Alls komu fram 347 ábendingar sem skiptust nokkuð jafnt milli þriggja spurninga sem lagðar voru fyrir íbúafundinn.
1. Hvað gerum við vel í umhverfismálum okkar?
2. Hvað finnst þér brýnast í umhverfismálum?
3. Hvað getum við gert betur?

Ákveðið að birta allar ábendingar frá íbúafundinum þar sem þær hafa verið flokkaðar í málaflokka og samantekt niðurstaðna.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

02

13. fundur

Ábendingar frá íbúafundi umhverfisnefndar 12. maí sl. haldinn í Safnaðarheimilinu, þar sem unnið var út frá þrem spurningum sem búið er að flokka í málaflokka, þannig:$line$1. Almennt í umhverfinu - snyrtilegur bær$line$2. Náttúran$line$3. Sorphirða - úrgangsmál$line$4. Göngustígar og gangstéttar$line$5. Gatnamál og hringtorg$line$6. Opin svæði - gróður á lóðamörkum$line$7. Dýramál$line$$line$Samtals voru skráðar 347 ábendingar og athugasemdir á íbúafundinum.$line$$line$Unnið er að því að koma þeim öllum á www.gardabaer.is

Umhverfisnefnd Garðabæjar

03

12. fundur

Nærumhverfið skiptir okkur máli var heiti íbúafundar sem umhverfisnefnd stóð fyrir þann 12. maí í Safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli. $line$Jóna Sæmundsdóttir formaður setti fundinn með ávarpi um umhverfismál í Garðabæ og tilnefndi fundarstjóra Gunnar Einarsson bæjarstjóra.$line$Eftir örerindi,$line$Erlu Biljar Bjarnardóttur, umhverfisstjóra$line$Smára Guðmundssonar, garðyrkjustjóra$line$Eysteins Haraldssonar, bæjarverkfræðings$line$Sófusar Gústavssonar, götustjóra í Smáraflöt með sjónarmið íbúa,$line$var fundargestum síðan boðið uppá súpu.$line$$line$Hópar söfnuðust saman umhverfis borðeyjar með borðstjóra sem unnu úr þrem spurningum sem birtar voru í dagskrá fundarins, þær voru:$line$Hvað finnst þér brýnast í umhverfismálum?$line$Hvað gerum við vel í umhverfismálum okkar?$line$Hvað getum við gert betur?

Mikil ánægja er með íbúafundinn sem tókst vel. Ábendingar íbúa sem komu fram á fundinum verða birtar á vefsíðu bæjarins og unnið með þær í umhverfisnefnd og áfram til fjárhagsáætlunnar næsta árs sem þurfa slíka afgreiðslu.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

04

11. fundur

Nefndin fyrirhugar að halda íbúafund um nærumhverfi þriðjudaginn 12. maí.

Skipulag fundarins rætt.