13. fundur
13. fundur
Umhverfisnefnd Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
10.06.2015
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Jóna Sæmundsdóttir - formaður
- Huginn Freyr Þorsteinsson - aðalmaður
- Erling Jóhannesson - aðalmaður
- Þórunn Erla Einarsdóttir - varamaður
- Halldór Halldórsson - varamaður
- Erla Bil Bjarnardóttir - umhverfisstjóri
Ritari
- Erla Bil Bjarnardóttir
Dagskrá
Málsnúmer 1504063
01
Íbúafundur umhverfisnefndar
Ábendingar frá íbúafundi umhverfisnefndar 12. maí sl. haldinn í Safnaðarheimilinu, þar sem unnið var út frá þrem spurningum sem búið er að flokka í málaflokka, þannig:$line$1. Almennt í umhverfinu - snyrtilegur bær$line$2. Náttúran$line$3. Sorphirða - úrgangsmál$line$4. Göngustígar og gangstéttar$line$5. Gatnamál og hringtorg$line$6. Opin svæði - gróður á lóðamörkum$line$7. Dýramál$line$$line$Samtals voru skráðar 347 ábendingar og athugasemdir á íbúafundinum.$line$$line$Unnið er að því að koma þeim öllum á www.gardabaer.is
Málsnúmer 1504183
02
Styrkur til samgönguleiða - Hlíðarvegur í Heiðmörk
Svarbréf Vegagerðarinnar dags.31. maí 2015 var jákvætt vegna styrkbeiðni umhverfisstjóra þann 15. apríl sl. Styrkurinn er til framkvæmda við Hlíðarveg í Heiðmörk kr. 2.500.000.-. Meðfylgjandi styrkbeiðninni var teikning af ómalbikaða hluta Hlíðarvegar og bílastæðum sunnan við enda Vífilsstaðahlíðar.$line$$line$Umhverfisnefnd sendir erindi til bæjarráðs þar sem farið er fram á mótframlag 2,5 mkr. ásamt framkvæmdarleyfi.
Málsnúmer 1505156
03
Líffræðileg fjölbreytni - kynning að drögum að stefnu
Kynning var á drögum að stefnu um líffræðilega fjölbreytni í Reykjavík þann 18. maí er formaður og umhverfisstjóri sóttu. Til fundarins sem fór fram í Borgartúni 12-14 voru nágrannasveitarfélög boðuð ásamt sérfræðingum á sviði náttúrufræða.$line$$line$Áhugaverð stefna sem áætlað er að ljúka í haust.$line$Nefndin hefur hug á að vinna að sambærilegri stefnumótum um líffræðilega fjölbreytni í Garðabæ, til grundvallar verða rannsóknarskýrslur og vöktunaráætlun sem þegar hafa verið gerðar.
Málsnúmer 1506038
04
Drög að stefnu í minjavernd
Drög að stefnu í minjavernd send frá Minjastofnun Íslands 3. júní sl. til athugasemda.$line$Hægt er að senda athugasemdir við stefnuna til 22. júní nk.$line$$line$Lagt fram.
Málsnúmer 1401052
05
Lestarsamgöngur, Kef-Rvk
Kynning á hugmynd um framkvæmdir og fjármögnun verkefnis við fluglest á milli Keflavíkur og Reykjavíkur. Bæjarráð vísar þann 2. júní sl. kynningunni til umfjöllunar skipulags og umhverfisnefndar.$line$Meðfylgjandi er bréf Leós S. Ágústssonar dags.15.05.15$line$$line$Lagt fram til kynningar.
Málsnúmer 1403066
06
Vegprestar og fræðsluskilti við reiðleiðir
Erindi og upplýsingar dags. 10.05.15 frá reiðveganefnd Spretts um framkvæmd við svokallaða vegpresta - fræðsluskilti við reiðleiðir í bæjarlandinu.$line$$line$Nefndin lýsir ánægju með framkvæmd og frágang skiltanna.
Málsnúmer 1505163
07
Vífilsstaðavatn og fuglar
Erindi barst frá Ævari Petersen fuglafræðingi og Malcolm Stott þann 18. maí sl. um hugmynd að koma fyrir hreiðurfleka handa himbrimum á Vífilsstaðavatni$line$$line$Nefndin þakkar áhugann, en telur að í friðlandinu verði að gæta varúðar.
Málsnúmer 1506043
08
Snyrtilegt umhverfi 2015
Umhverfisnefnd Garðabæjar veitir viðurkenningar fyrir snyrtilegan frágang lóða íbúðarhúsnæðis, fyrirtækis og einnig fyrir opið svæði eða götu fyrir árið 2015.$line$$line$Auglýst verður eftir ábendingum.
Málsnúmer 1506065
09
Strönd og lækir, mengunarmælingar
Niðurstöður mælinga yfirborðsvatns vegna útivistar og verndunar náttúrulegra gæða frá Heilbrigðiseftirliti. Sýnatökur á tímabili 7. - 13. maí 2015. Sýnatökustaðir voru Vífilsstaðavatn, Hraunsholtslækur, Arnarneslækur, Urriðavatn, Stórakrókslækur, Kasthúsatjörn og skurðir sunnan Túnahverfis á Álftanesi.$line$Tökustaðir strandsýna voru 23 meðfram ströndinni frá Garðahverfi norður í Kópavog.$line$Þessar mengunarmælingar Heilbrigðiseftirlitsins í maí eru lögbundnar.$line$$line$Farið yfir niðurstöður mengunarmælinga, ánægjuleg þróun.
Málsnúmer 1410202
10
Merking hjólastíga á höfuðborgarsvæðinu fyrir ferðamenn
Erindi frá Höfuðborgarstofu dags. 7. júní 2015 varðandi þátttöku Garðabæjar í gerð þemakorts um áhugaverðar hjólaleiðir eða hringi fyrir ferðamenn. Óskað er eftir framlagi frá Garðabæ í verkefnið.$line$Hulda Hauksdóttir upplýsinga- og menningarfulltrúi er fulltrúi Garðabæjar með aðstoð umhverfisstjóra.$line$$line$Þátttaka og framlag samþykkt.
Málsnúmer 1506109
11
Athöfn, frú Vigdís Finnbogadóttir var kjörin forseti Íslands fyrir 35 árum
Erindi frá Skógræktarfélagi Íslands dags. 21.05.15 og 10.06.15 varðandi samstarf skógræktarfélaga um viðburð í tilefni þess að 35 ár eru liðin frá því að frú Vígdís Finnbogadottir var kjörin forseti Íslands. Athöfn þar sem gróðursett yrðu þrjú tré að hætti Vígdísar laugardaginn 27. júní með þátttöku sveitarfélags og skógræktarfélags.$line$$line$Umhverfisnefnd fagnar þátttöku í athöfninni.