Beint í efni

14. fundur

08.07.2015
Umhverfisnefnd Garðabæjar

14. fundur

Umhverfisnefnd Garðabæjar

í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

08.07.2015

Kl. 16:15 - 19:45

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Jóna Sæmundsdóttir - formaður
  • Berglind Birgisdóttir - aðalmaður
  • Huginn Freyr Þorsteinsson - aðalmaður
  • Erling Jóhannesson - aðalmaður
  • Halldór Halldórsson - varamaður

Starfsmenn

  • Erla Bil Bjarnardóttir - umhverfisstjóri

Ritari

  • Erla Bil Bjarnardóttir

Dagskrá

Málsnúmer 1504063

01

Nærumhverfið skiptir okkur máli

Niðurstöður íbúafundar undir heiti Nærumhverfið skiptir okkur máli - stöndum saman og tökum ábyrgð, haldinn í Safnaðraheimili Kirkjuhvoli 12. maí 2015 verði birtar á vef Garðabæjar ásamt flokkun ábendinga niður í málaflokka.

Alls komu fram 347 ábendingar sem skiptust nokkuð jafnt milli þriggja spurninga sem lagðar voru fyrir íbúafundinn.

1. Hvað gerum við vel í umhverfismálum okkar?

2. Hvað finnst þér brýnast í umhverfismálum?

3. Hvað getum við gert betur?

Ákveðið að birta allar ábendingar frá íbúafundinum þar sem þær hafa verið flokkaðar í málaflokka og samantekt niðurstaðna.

Málsnúmer 1506043

02

Snyrtilegt umhverfi 2015

Auglýst var eftir ábendingu að snyrtilegu umhverfi 2015, fyrir lóðir íbúðarhúsnæðis, lóð fyrirtækis eða stofnunnar og snyrtilega götu eða opið svæði.

Umhverfisnefnd fór vettvangsferð um Garðabæ og sendir bæjarráði tillögur sínar.