Beint í efni

Vífilsstaðavatn - rannsóknarleyfi

Málsnúmer 1501499

Ferill máls

Umhverfisnefnd Garðabæjar

01

11. fundur

Beiðni frá Veiðimálastofnun 26. mars 2015 um að veiða bleikju til sýnatöku vegna rannsókna á nýrnasýki í samstarfi við Fisksjúkdómadeild Keldna.

Samþykkt.

Bæjarráð Garðabæjar

02

11 (1679). fundur

Bæjarráð tekur jákvætt í tillögur umhverfisnefndar um vöktunaráætlun Vífilsstaðavatns og Urriðavatns og vísar fjárveitingum vegna kostnaðar við vöktun til afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2016.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

03

10. fundur

Vöktunaráætlun um Vífilsstaðavatn og Urriðavatn hefur verið unnin í samstarfi við fagstofnannir o.fl.$line$Tillagan tekur til vöktunaráætlunar fyrir efnamengun, örverur, smádýralíf, háplöntur, svifþörunga, fiska og fugla.

Umhverfisnefnd sendir bæjarráði tillögu að vöktunaráætlun fyrir Vífilsstaðavatn og Urriðavatn sem óskað var eftir vegna vistvottunar skipulags Urriðaholts 15.12.14

Umhverfisnefnd Garðabæjar

04

9. fundur

Lögð fram drög að vöktunaráætlun fyrir Vífilsstaðavatn og Urriðavatn.

Í vinnslu.