Beint í efni

10. fundur

11.03.2015
Umhverfisnefnd Garðabæjar

10. fundur

Umhverfisnefnd Garðabæjar

í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

11.03.2015

Kl. 17:00 - 19:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Jóna Sæmundsdóttir - formaður
  • Jóhann Gunnar Jóhannsson - aðalmaður
  • Berglind Birgisdóttir - aðalmaður
  • Huginn Freyr Þorsteinsson - aðalmaður
  • Erling Jóhannesson - aðalmaður
  • Erla Bil Bjarnardóttir - umhverfisstjóri

Ritari

  • Erla Bil Bjarnardóttir

Dagskrá

Málsnúmer 1403049

01

Fuglar í fjörum, á grunnsævi og tjörnum á Álftanesi árið 2014

Jóhann Óli Hilmarsson og Ólafur Einarsson kynntu rannsóknarskýrslu um rannsókn á fuglalífi á Álftanesi sem þeir framkvæmdu árið 2014.

Mikil ánægja er með þessa rannsókn og fróðlega skýrslu þeirra félaga, sem sett verður á www.gardabaer.is$line$$line$Fyrirhugað er að kynna rannsóknina fyrir íbúum og öðrum áhugasömum í samstarfi við Fugla og náttúruverndarfélag Álftaness.$line$$line$Útikennsla um fuglalíf á Nesinu fyrir nemendur Álftanesskóla verður í boði nefndarinnar um fartíma fugla í apríl.

Málsnúmer 1502271

02

Kosning aðal- og varamanns í umhverfisnefnd

Á fundi bæjarráðs þann 19. febrúar sl. var Erling Jóhannesson kosinn sem aðalmaður í umhverfisnefnd og Guðrún Elín Herbertsdóttir sem varamaður í umhverfisnefnd.$line$Erling er boðaður á 10. fund umhverfisnefndar.

Nýr nefndarmaður boðinn velkomin.

Málsnúmer 1501499

03

Vöktunaráætlun Vífilsstaðavatns og Urriðavatns

Vöktunaráætlun um Vífilsstaðavatn og Urriðavatn hefur verið unnin í samstarfi við fagstofnannir o.fl.$line$Tillagan tekur til vöktunaráætlunar fyrir efnamengun, örverur, smádýralíf, háplöntur, svifþörunga, fiska og fugla.

Umhverfisnefnd sendir bæjarráði tillögu að vöktunaráætlun fyrir Vífilsstaðavatn og Urriðavatn sem óskað var eftir vegna vistvottunar skipulags Urriðaholts 15.12.14

Málsnúmer 1501223

04

Bessastaðatjörn - lokur

Minnisblað dags. 8. mars 2015 um lokun Bessastaðatjarnar frá Jóni Ólafssyni vatnalíffræðingi á Veiðimálastofnun lagt fram.

Umhverfisstjóri kynnti fyrir nefndinni efni samráðsfundar með fulltrúum Forsetaembættisins þann 9. mars sl. um framtíðarfyrirkomulag Bessastaðatjarnar og fleiri mál Bessastaðalands. Ákveðið var að að bærinn sjái til þess að lokunum verði haldið opnum sem hefur verið framkvæmt tvisvar á ári.

Málsnúmer 1309195

05

Trjágróður í Garðabæ

Kynnt nýtt og viðbótar fræðsluefni um trjágróður á lóðum fyrir íbúa unnið af Baldri Gunnlaugssyni hjá EFLU ráðgjöf.

Þetta nýja efni er fjórþætt svo sem:$line$ Gróður á lóðamörkum$line$ Heppilegur gróður á lóðum$line$ Ágengar plöntur$line$ Varasamur gróður$line$$line$Umhverfisnefnd hvetur alla til þess að kynna sér þetta fróðlega efni um gróður í görðum.

Málsnúmer 1302243

06

Aðalskipulag Garðabæjar, endurskoðun.

Ábendingar umhverfisnefndar við gerð endurskoðunar aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030.

Umhverfisnefnd sendir skipulagsstjóra tuttugu og eina ábendingu til endurskoðunar aðalskipulags Garðabæjar.

Málsnúmer 1501328

07

Fundargerðir 2014 - 2018 - Reykjanesfólkvangur

Fundargerð 1. fundar stjórnar Reykjanesfólksvangs.

Lögð fram.

Málsnúmer 1503072

08

Fundargerðir 2014-2018

Fundargerð 1. fundar stjórnar Bláfjallafólksvangs.

Lögð fram

Málsnúmer 1503091

09

Hreinsunarátak 2015 - snyrtilegur bær

Hreinsunarátak, vorhreinsun í Garðabæ, fyrirkomulag og kynning á verkefninu.

Unnið verður áfram að hefðbundnum vorverkefnum við að gera snyrtilegan bæ snyrtilegri. Áætlunin verður kynnt í Garðapóstinum og á www.gardabaer.is