Hreinsunarátak 2015 - snyrtilegur bær
Ferill máls
Umhverfisnefnd Garðabæjar
01
12. fundur
Hreinsunar átak með þátttöku hópa íbúa, félagasamtaka og skóla var auglýst í kynningarbæklingi og Garðapóstinum daganna 10. - 24. apríl. Hægt var að sækja um að taka svæði til hreinsunar og hljóta hvatningastyrk að launum.$line$Vorhreinsun lóða þar sem garðaúrgangur er sóttur heim við lóðamörk var daganna 27. apríl til 13. maí.
Verkefni vorsins hafa gengið vel, þrátt fyrir kalt vor. Aldrei hafa fleiri hópar tekið þátt í hreinsunarátakinu síðan verkefnið byrjaði 2008 eða 32 hópar.$line$Bæjarlandið er hreinna eftir yfirferð hópanna sem ungmenni umhverfishópa halda áfram með í júní og júlí.
Umhverfisnefnd Garðabæjar
02
11. fundur
Vorhreinsun 2015$line$1. Hreinsunarátak 10. - 24. apríl$line$2. Vorhreinsun lóða 27.apríl - 13. maí$line$$line$Auglýsing birt í Garðapóstinum fyrir og eftir páska.$line$Kynningarbæklingi dreift á hvert heimili þann 8. apríl. Bæklingurinn inniheldur ofangreint ásamt upplýsingum um skólagarða, matjurtagarða, gróður á lóðamörkun,að leggja ekki bílum á graseyjar, hirða upp eftir hunda og hvatning að hafa safnhaugakassa í garðinum til að minnka notkun á plastpokum.$line$$line$
Áætlunin samþykkt.
Umhverfisnefnd Garðabæjar
03
10. fundur
Hreinsunarátak, vorhreinsun í Garðabæ, fyrirkomulag og kynning á verkefninu.
Unnið verður áfram að hefðbundnum vorverkefnum við að gera snyrtilegan bæ snyrtilegri. Áætlunin verður kynnt í Garðapóstinum og á www.gardabaer.is