40. fundur
40. fundur
Umhverfisnefnd Garðabæjar
í fundarherbergi 5. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
13.05.2014
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Júlía Guðrún Ingvarsdóttir - formaður
- Þorsteinn Þorsteinsson - aðalmaður
- Jón Bjarni Þorsteinsson - aðalmaður
- Sigurbjörn Ingimundarson - aðalmaður
- Sigríður Erla Jónsdóttir - aðalmaður
- Elías Jakob Bjarnason - áheyrnarfulltrúi
Ritari
- Erla Bil Bjarnardóttir
Dagskrá
Málsnúmer 1404424
01
Friðlýsing Búrfells sem náttúruvættis og Búrfellshrauna sem fólkvangs.
Sigurður Ingi Jóhannsson umhverfis- og auðlindaráðherra, Gunnar Einarsson bæjarstjóri og Kristín Linda Árnadóttir forstjóri Umhverfisstofnunnar undirrituðu friðlýsingar ásamt samstarfssamningi um umsjón hinna friðlýstu svæða, í húsi Náttúrufræðistofnunar á Urriðaholti þann 30. apríl 2014. Einnig yfirlýsing Bjarna Benidiktssonar fjármála- og efnahagsráðherra varðandi Vífilsstaðahraun sem er í eigu ríkissjóðs.
Friðlýsingarnar ná til:$line$1. Hraunahluta Búrfellshrauns þ.e. Garðahrauns, Vífilsstaðahrauns og Maríuhella, samtals 156,3 hektarar. Þetta svæði er friðlýst sem fólkvangur.$line$2. Búrfells, Búrfellsgjár og eystri hluti Selgjár, samtals 323 hektarar sem voru friðlýst sem náttúruvætti.$line$$line$Samtals eru svæðin sem voru friðlýst um 480 ha að flatamáli. Eftir undirritunina er búið að friðlýsa samtals um 1740 ha lands í Garðabæ. Friðlýsingarnar eru áfangi að því markmiði að friðlýsa Búrfellshraun allt frá gíg til strandar en að því hefur verið unnið í áföngum frá árinu 2006.$line$$line$Umhverfisnefnd fagnar ánægjulegum og merkum áfanga í friðlýsingum í Garðabæ, á lokafundi nefndarinnar.
Málsnúmer 1402245
02
Hreinsunarátak 2014
Unnið hefur verið að markmiðum um snyrtilegasta bæinn.:$line$1. "Temdu þér taupoka" er átak til að minnka notkun plastpoka í bænum og því fékk hvert heimili taupoka til innkaupa, í stað plastburðarpoka.$line$2. Hreinsun í nærumhverfi. Í hreinsunarátakinu sem er árlegt tekur fólk sig saman um að hreinsa til í sínu nærumhverfi. Þar eru að verki t.d. nágrannar, skólar, félagasamtök og allir hvattir til þátttöku.$line$3. Vorhreinsun lóða, þar sem starfsmenn bæjarins fjarlægja garðaúrgang frá lóðum bæjarbúa.
Umhverfisnefnd er ánægð með verkefnin sem staðið hafa í apríl og maí með góðri þátttöku íbúa þ.á.m. tóku tuttugu hópar þátt í að tína rusl í bæjarlandinu.$line$Taupokarnir fengu góðar viðtökur bæjarbúa.$line$$line$Ákveðið er að halda áfram verkefninu að hreinsa til í nærumhverfinu.$line$$line$Nefndin hefur áhyggjur af söfnum númerslausra bíla á lóðum, vinna þarf í að að sporna gegn því, enda mikið umhverfislýti. $line$$line$Nefndin mun koma þeim tilmælum á framfæri við umhverfisnefnd 2014-2018 að unnið verði að samræmdum aðgerðum til að sporna við miklum sóðaskap á lóðum í bænum.
Málsnúmer 1405137
03
Samstarfsyfirlýsing varðandi mikilvægi Álftaness fyrir margæsir
Erindi Sveinbjarnar Njálssonar skólastjóra Álftanesskóla þar sem óskað er endurnýunar á samstarfsyfirlýsingu varðandi mikilvægi Álftaness fyrir margæsir sem gerð var árið 2004 milli sveitarstjórnar Álftaness og Umhverfisráðuneytis og jafnframt sama ár samstarfsyfirlýsingar um "Lesið í Nesið" milli Álftanesskóla, Bessastaðahrepps og Náttúrufræðistofnunar Íslands.$line$Lagt er til að sameinað sveitarfélag endurnýji samninginn.
Nefndin er sammála um að verkefnið sé gott umhverfisfræðsluverkefni, sem hægt væri að tengja rannsóknum á fuglalífi á Álftanesi sem stendur yfir 2014.$line$$line$Þar sem umboði nefndarinnar lýkur eftir örfáar vikur, þykir nefndarmönnum eðlilegt að láta þessa ákvörðun bíða nýrrar nefndar.
Málsnúmer 1312302
04
Hreinsun Arnarneslækjar
Að beiðni Sigurðar Hafliðasonar forstöðumanns Þjónustumiðstöðvar Garðabæjar var lagt fram yfirlit Strendings ehf. um stöðu framkvæmda við hreinsun Arnarneslækjar, tímabilið febrúar - maí 2014.
Umhverfisnefnd er ánægð með þær aðgerðir sem framkvæmdar hafa verið og með þann árangur sem hefur áunnist, enda nauðsynlegt að verja lækina í bæjarlandinu.
Málsnúmer 1405136
05
Friðland Vífilsstaðavatns - fræðsluskilti
Endurnýjun fræðsluskilta í friðlandi Vífilsstaðavatns er nauðsynleg. Skiltin fjalla um lífríki vatnsins, gróður og fugla í friðlandinu, hönnun Jóns Baldurs Hlíðbergs. $line$Upphaflegu skiltin eru frá 2002.
Umhverfisstjóri lagði fram tillögur af endurnýjuðum fræðsluskiltum.$line$$line$Nefndin samþykkir endurnýjun fræðsluskilta.
Málsnúmer 1405135
06
Ráðstefna FENUR í Garðabæ
Fagráð um endurvinnslu og úrgang (FENÚR) óskaði eftir því að halda aðalfund og hálfsdags ráðstefnu í Garðabæ með þátttöku bæjarins þ.e. fundarstjórn og einu erindi. $line$Dagskráin verður 22. maí nk. í Safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli, ráðstefnan er öllum opin.
Lagt fram.
Málsnúmer 1311299
07
Framtíð Reykjanesfólkvangs
Að beiðni bæjarstjóra var tekin til umfjöllunar framtíð Reykjanesfólksvangs, eftir fund sem Pálmi Randversson fulltrúi Garðabæjar í stjórn Fólkvangsins óskaði eftir með bæjarstjóra og umhverfisstjóra þann 2. maí sl.
Umhverfisstjóri kynnti nefndarmönnum málefni Reykjanesfólksvangs þar sem fram hefur komið að vilji stjórnar Fólkvangsins að breyta fyrirkomulagi hans. $line$Nefndin hefur fylgst með framvindu mála m.a. tekið fyrir drög að stjórnunaráætlun hans og fundargerðir stjórnar.
Málsnúmer 1405134
08
Ársfundur Umhverfisstofnunar 2014
Boð á Ársfund Umhverfisstofnunar 9. maí sl. þema fundarins var; horfum á árangur.
Umhverfisstjóri sótti fundinn og kynnti það helsta sem var á dagskrá fundarins.
Málsnúmer 1404518
09
Beiðni um styrk vegna Yrkjusjóðs
Lögð fram beiðni Yrkjusjóðs dags. 6. maí sl. um styrk að lágmarki kr. 150.000.- til að getað úthlutað trjáplöntum til grunnskóla til gróðursetningar. Bæjarráð vísar erindinu til umfjöllunar og afgreiðslu umhverfisnefndar.
Umhverfisnefnd er samþykk erindinu, enda hafa nemendur allra grunnskóla í Garðabæ verið virkir þátttakendur við gróðursetningar Yrkjuskóga.
Málsnúmer 1312106
10
Stjórn vatnamála 2014
Frá Umhverfisstofnun, til allra þeirra sem koma að vinnu við stjórn vatnamála dags 11. apríl sl. Þar upplýsir Svanfríður Dóra Karlsdóttir niðurskurð á fjárveitingu frá Alþingi til verkefnisins 2014, því verði verulega dregið úr verkefninu í ár.$line$Gert er ráð fyrir að einungis verði gerður samningur við Veðurstofu Íslands vegna reksturs Vatnavefsjár.
Umhverfisnefnd á fulltrúa í vatnasvæðisnefnd 4, sem umhverfisstjóri hefur gegnt.
Málsnúmer 1404306
11
Áætlun til þriggja ára refaveiða
Frá Umhverfisstofnun bréf og drög að áætlun til þriggja ára um refaveiðar 2014-2016 dags 14. maí sl.
Lagt fram.
Málsnúmer 1404284
12
Frumvarp til laga um örnefni (heildarlög), 481. mál
Frá nefndarsviði Alþingis sent 11. apríl sl. frumvarp til laga um örnefni, þingskjal 832 - 481. mál. Umsögn berist eigi síðar en 30. apríl.
Lagt fram.
Málsnúmer 1310134
13
Hringsjá á Smalaholti
Gerð hringsjár á Smalaholti er lokið, hringsjána hannaði Jakob Hálfdánarson, tæknifræðingur. Steinsmiðja S. Helgasonar setti hringsjána upp á stöpul hornamarki sveitarfélaganna.$line$Verkefnið var samstarfsverkefni umhverfisráðs Kópavogs og umhverfisnefndar Garðabæjar, einnig kom Skógræktarfélag Garðabæjar að verkefninu.
Umhverfisnefnd leggur til að hringsjáin verði afhjúpuð sunnudaginn 25. maí kl.13:30.
Málsnúmer 1405186
14
Minjagarður Hofsstöðum 10 ára - dagskrá
Lögð fram auglýsing á fræðslugöngu í tilefni 10 ára afmælis minjagarðsins á Hofsstöðum þann 21. maí, dagskráin hefst kl.20:00. Ragnhildur Traustadóttir, fornleifafræðingur verður með leiðsögn í minjagarðinum og við Urriðakot.$line$Dagskráin er samstarfsverkefni umhverfisnefndar og menningar- og safnanefndar.
Umhverfisnefnd fagnar þessu samstarfi.
Málsnúmer 1405303
15
Lausaganga katta og hunda um varptíma fugla
Ósk frá íbúa á Álftanesi um aðgerðir vegna lausagöngu katta og hunda um varptíma fugla.
Aðgerðir ræddar.