Friðlýsing Búrfells sem náttúruvættis og Búrfellshrauna sem fólkvangs.
Ferill máls
Umhverfisnefnd Garðabæjar
01
40. fundur
Sigurður Ingi Jóhannsson umhverfis- og auðlindaráðherra, Gunnar Einarsson bæjarstjóri og Kristín Linda Árnadóttir forstjóri Umhverfisstofnunnar undirrituðu friðlýsingar ásamt samstarfssamningi um umsjón hinna friðlýstu svæða, í húsi Náttúrufræðistofnunar á Urriðaholti þann 30. apríl 2014. Einnig yfirlýsing Bjarna Benidiktssonar fjármála- og efnahagsráðherra varðandi Vífilsstaðahraun sem er í eigu ríkissjóðs.
Friðlýsingarnar ná til:$line$1. Hraunahluta Búrfellshrauns þ.e. Garðahrauns, Vífilsstaðahrauns og Maríuhella, samtals 156,3 hektarar. Þetta svæði er friðlýst sem fólkvangur.$line$2. Búrfells, Búrfellsgjár og eystri hluti Selgjár, samtals 323 hektarar sem voru friðlýst sem náttúruvætti.$line$$line$Samtals eru svæðin sem voru friðlýst um 480 ha að flatamáli. Eftir undirritunina er búið að friðlýsa samtals um 1740 ha lands í Garðabæ. Friðlýsingarnar eru áfangi að því markmiði að friðlýsa Búrfellshraun allt frá gíg til strandar en að því hefur verið unnið í áföngum frá árinu 2006.$line$$line$Umhverfisnefnd fagnar ánægjulegum og merkum áfanga í friðlýsingum í Garðabæ, á lokafundi nefndarinnar.
Bæjarráð Garðabæjar
02
16. fundur
Í samningunum sem fjalla um umsjón og rekstur friðlýstra svæða kemur m.a. fram að Garðabær taki að sér að annast daglegt eftirlit, umsjón og rekstur svæðanna.$line$$line$Bæjarráð samþykkir samningana fyrir sitt leyti.