16. fundur
16. fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
29.04.2014
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Erling Ásgeirsson - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
- Stefán Snær Konráðsson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Kristinn Guðlaugsson - áheyrnarfulltrúi
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
Málsnúmer 1404350
01
Bréf Gísla Vilhjálmssonar varðandi deiliskipulag Arnarness, ódags.
Í bréfinu mótmælir bréfritari ákvæði í nýsamþykktu deiliskipulagi Arnarness er varðar nýtingarhlutfall lóða.$line$$line$Bæjarráð bendir á að ákvæði um nýtingarhlutfall í deiliskipulagsáætlun fyrir Arnarnes byggir á ákvæði 1. mgr. 37. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 en þar kemur fram að í deiliskipulagi skuli teknar ákvarðanir um lóðir, lóðanotkun, byggingarreiti, byggðamynstur, þ.m.t. nýtingarhlutfall, útlit mannvirkja og form eftir því sem við á og aðrar skipulagsforsendur sem þurfa að liggja fyrir vegna byggingar- og framkvæmdaleyfa.$line$$line$Í minnisblaði Andra Árnasonar, hrl. sem lagt var fram við vinnslu skipulagsins er komist að þeirri niðurstöðu að ákvæði deiliskipulags Arnarness um hámarks nýtingarhlutfall og hámarks byggðan flöt sé með vísan til ofangreinds lagaákvæðis reist á málefnalegum grunni með hliðsjón af núverandi byggðarlagi hverfisins.$line$$line$Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara bréfritara.
Málsnúmer 1404306
02
Bréf umhverfisstofnunar varðandi áætlun til þriggja ára um refaveiðar, dags. 14.04.14.
Lagt fram.
Málsnúmer 1404352
03
Drög að samkomulagi um breytingu á staðarmörkum Garðabæjar og Hafnarfjarðar.
Í samningnum er gert ráð fyrir breytingu á staðarmörkum sveitarfélaganna við Hrafnistu vegna fyrirhugaðra byggingaráforma á svæðinu. Heildarstærð landsvæðis sem eftir breytingu verður innan staðarmarka Hafnarfjarðar nemur 18.925 m2. Þá gerir samningurinn ráð fyrir breytingu á staðarmörkum sveitarfélaganna í Molduhrauni milli Vesturhrauns og Skútuhrauns. Heildarstærð landsvæðis sem eftir breytinguna verður innan staðarmarka Garðabæjar nemur 18.933 m2. $line$$line$Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja samninginn.
Málsnúmer 1311473
04
Bréf UMFÍ varðandi ráðstefnuna Ungt fólk og lýðræði 2014, dags. 14.04.14.
Bæjarráð vísar ályktunum frá ráðstefnunni Ungt fólk og lýðræði til kynningar í ungmennaráði og íþrótta- og tómstundaráði
Málsnúmer 1309532
05
Íþrótta- og tómstundastefna Garðabæjar.
Bæjarráð vísar stefnunni til kynningar í ungmennaráði og til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Málsnúmer 1404353
06
Tilboð í hljóðvarnir við Lundahverfi.
Eftirfarandi tilboð í hljóðvarnir við Lundahverfi eru lögð fram:$line$$line$Bjössi ehf. kr. 34.800.000$line$Loftorka kr. 38.109.000$line$Gleypnir verktakar kr. 34.297.650$line$Grafa og grjót kr. 62.458.300$line$Steingarðar kr. 40.053.000$line$S.S. verktakar kr. 37.757.500$line$Óskatak kr. 37.732.200$line$$line$Kostnaðaráætlun kr. 38.800.500$line$$line$Bæjarráð samþykkir að taka tilboði Gleypnis verktaka og felur bæjarverkfræðingi að ganga til samninga við fyrirtækið en gæta skal að biðtíma vegna samningsgerðar samkvæmt 76. gr. laga um opinber innkaup nr. 84/2007.
Málsnúmer 1404355
07
Tilboð í rekstur loftræstikerfa Garðabæjar 2014-2016.
Eftirfarandi tilboð í rekstur loftræstikerfa lögð fram.$line$$line$Stjörnublikk ehf. kr. 12.990.000$line$Aðalblikk ehf. kr. 25.555.397$line$Rafloft ehf. kr. 27.204.845$line$HS Hitastýring kr. 13.243.988$line$Rafstjórn ehf. kr. 7.166.653$line$Bliksmiðurinn kr. 28.353.289$line$$line$Bæjarráð samþykkir að taka tilboði Rafstjórnar ehf. og felur bæjarverkfræðingi að ganga til samninga við fyrirtækið en gæta skal að biðtíma vegna samningsgerðar samkvæmt 76. gr. laga um opinber innkaup nr. 84/2007.
Málsnúmer 1311354
08
Skýrsla um rekstur Fjölbrautaskólans í Garðabæ.
Bæjarráð samþykkir að vísa skýrslunni til umfjöllunar skólanefndar og leikskólanefndar.
Málsnúmer 1404284
09
Bréf nefndarsviðs Alþingis varðandi frumvarp til laga um örnefni (heildarlög), dags. 11.04.14.
Bæjarráð vísar bréfinu til kynningar í umhverfisnefnd.
Málsnúmer 1404351
10
Bréf nefndarsviðs Alþingis varðandi tillögu til þingsályktunar um fjögurra ára samgönguáætlun 2013-2016, dags. 15.04.14.
Lagt fram.
Málsnúmer 1309310
11
Samningur við Sankti Jósefssystur um kaup á fasteigninni Holtsbúð 87.
Lagður fram til staðfestingar.
Málsnúmer 1404431
12
Bréf skólastjóra Tónlistarskóla Garðabæjar varðandi sumarlaun nemenda 2014, dags. 25.04.14.
Bæjarráð samþykkir tillögu skólastjóra Tónlistarskóla Garðabæjar um að eftirfarandi nemendur fái sumarlaun árið 2014.$line$$line$Helgi Þorleiksson, kt. 190990-3549, slagverksnemandi.$line$Stefán Páll Sturluson, kt. 110595-2399, gítarnemandi.
Málsnúmer 1404424
13
Drög að samningum um umsjón og rekstur náttúruvættisins Búrfells, Búrfellsgjá og eystri hluta Selgjár og fólkvangs í Garðahrauni,Vífilsstaðahrauni og Maríuhellum.
Í samningunum sem fjalla um umsjón og rekstur friðlýstra svæða kemur m.a. fram að Garðabær taki að sér að annast daglegt eftirlit, umsjón og rekstur svæðanna.$line$$line$Bæjarráð samþykkir samningana fyrir sitt leyti.
Málsnúmer 1404387
14
Bréf Garðyrkjufélags Íslands varðandi ályktanir um kynbætur á yndisplöntum og um mótun landslags og ræktun í þéttbýli, ódags.
Lagt fram.
Málsnúmer 1306040
15
Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins 2015-2040.
Bæjarstjóri kynnti stöðu mála varðandi kynningu og vinnslu svæðisskipulags höfuðborgarsvæðisins en formlegum kynningarferli á vinnslustigi lauk 22. apríl sl. Tillagan ásamt athugasemdum sem borist hafa er nú til áframhaldandi umræðu í svæðisskipulagsnefnd.$line$$line$Bæjarstjóri upplýsti að fyrirhugaður er fundur í stjórn SSH með svæðisskipulagsstjóra, ráðgjöfum svæðisskipulagsins og fulltrúum vegagerðarinnar til að ræða nánar um samgöngumál á svæðinu.$line$$line$Samkvæmt 3. mgr. 23. gr. skipulagslaga 123/2010 skal að lokinni kynningu leggja endanlega svæðisskipulagstillögu fyrir hlutaðeigandi sveitarstjórnir til samþykktar.