Beint í efni

Bréf Gísla Vilhjálmssonar varðandi deiliskipulag Arnarness, ódags.

Málsnúmer 1404350

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

16. fundur

Í bréfinu mótmælir bréfritari ákvæði í nýsamþykktu deiliskipulagi Arnarness er varðar nýtingarhlutfall lóða.$line$$line$Bæjarráð bendir á að ákvæði um nýtingarhlutfall í deiliskipulagsáætlun fyrir Arnarnes byggir á ákvæði 1. mgr. 37. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 en þar kemur fram að í deiliskipulagi skuli teknar ákvarðanir um lóðir, lóðanotkun, byggingarreiti, byggðamynstur, þ.m.t. nýtingarhlutfall, útlit mannvirkja og form eftir því sem við á og aðrar skipulagsforsendur sem þurfa að liggja fyrir vegna byggingar- og framkvæmdaleyfa.$line$$line$Í minnisblaði Andra Árnasonar, hrl. sem lagt var fram við vinnslu skipulagsins er komist að þeirri niðurstöðu að ákvæði deiliskipulags Arnarness um hámarks nýtingarhlutfall og hámarks byggðan flöt sé með vísan til ofangreinds lagaákvæðis reist á málefnalegum grunni með hliðsjón af núverandi byggðarlagi hverfisins.$line$$line$Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara bréfritara.