Íþrótta- og tómstundastefna Garðabæjar.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
16. fundur
Bæjarráð vísar stefnunni til kynningar í ungmennaráði og til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
02
37. fundur
Loka drög.
Loka drög nefndarinnar voru lögð fram og samþykkt að senda þau til annarra starfsnefnda til kynningar.
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
03
36. fundur
Fundarmenn fóru vandlega yfir texta núverandi stefnu. Lokaútgáfa verður tekin fyrir og afgreidd á næsta fundi.
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
04
34. fundur
Samþykkt að halda lengri fund fimmtudaginn 9. janúar nk. kl. 16:00-19:00 til að ganga frá uppfærslu á núverandi stefnu.
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
05
33. fundur
Vinna við endurskoðun stefnu í íþrótta- og tómstundamálum Garðabæjar er nú í gangi.
Rætt var um að afla frekari gagna og halda síðan vinnufund innan ÍTG til að ganga frá endurskoðaðri stefnu.
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
06
32. fundur
Komið er að endurskoðun á stefnu Garðabæjar í íþrótta- og tómstundarmálum. Núverandi stefna er á vef Garðabæjar.
Gunnari og Kára var falið að fara yfir stefnuna og gera við hana athugasemdir ásamt því að gera samanburð við önnur bæjarfélög. Málinu framhaldið á næsta fundi.