Beint í efni

37. fundur

14.02.2014
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

37. fundur

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

í íþróttamiðstöðinni Ásgarði

14.02.2014

Kl. 12:00 - 13:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Sigurður Guðmundsson - Formaður
  • Sigurður Bjarnason - Aðalmaður
  • Victor Ingi Olsen - Aðalmaður
  • Bragi Þorsteinn Bragason - aðalmaður
  • Einar Karl Birgisson - áheyrnarfulltrúi
  • Kári Jónsson - íþróttafulltrúi

Ritari

  • Kári Jónsson

Dagskrá

Málsnúmer 1401529

01

Oddur golfklúbbur

Ingi Þór Hermannsson formaður Odds og Emil Emilsson framkvæmdastjóri klúbbsins komu og gerðu grein fyrir erfiðri rekstrarstöðu og forsendum þar að baki. Fram kom að félagsmenn eru 1150 alls, fjórðungur þeirra eru íbúar í Garðabæ, 37,2% félagsmanna eru konur og 4,3% eru í barna og unglingastarfinu. 200 félagsmenn eru einnig félagar í Oddfellow reglunni, en klúbburinn er algerlega aðskilinn frá þeim. Þrátt fyrir að félagsgjaldið sé hærra en hjá öðrum gerir það ekki annað en að duga fyrir leigugjaldi af landinu og vellinum til Oddfellow reglunnar. Farið er fram á að Garðabær aðstoði klúbbinn við að greiða leiguna af landinu með einhverjum hætti, að hluta eða öllu leiti.$line$Ljóst er að miðað við stærð og afköst vallarins er hann nú fullbókaður og þörf á stækkun um 9 holur. Bentu þeir félagar á að mikil tækifæri liggja í heils árs útivist fyrir bæjarbúa, t.d. með því að nýta stígakerfi vallarins og nágrennis.$line$Samþykkt var að skoða málið frekar og um leið leita lausna til lengri tíma.

Málsnúmer 1402316

02

Afreksstyrkir 2014

Umsóknir um afreksstyrki 1. febrúar 2014

Samþykkt að styrkja eftirtalin félög og íþróttamenn þeirra um samtals kr. 800.000,-$line$Skíðadeild Breiðabliks v/Erlu Ásgeirsdóttur ólympíufara á skíðum kr. 200.000,-$line$Skíðadeild ÍR v/Helgu Maríu Vilhjálmsdóttur ólympíufara á skíðum kr. 200.000,-$line$Skíðadeild ÍR v/Freydísar Höllu Einarsdóttur skíðakonu á skíðum kr. 50.000,-$line$Frjálsíþróttadeild ÍR v/Bjargar Gunnarsdóttur spretthlaupara um kr. 50.000,-$line$Skylmingadeild FH v/Hilmars Arnar Jónssonar skylmingamanns um kr. 50.000,-$line$GKG v/Ragnars Más Garðarssonar golfara um kr. 50.000,-$line$Að auki fá íþróttakarl og íþróttakona Garðabæjar 2013 kr. 100.000,- hvort.$line$Sex umsóknum var hafnað.

Málsnúmer 1309532

03

Stefna í íþrótta- og tómstundamálum

Loka drög.

Loka drög nefndarinnar voru lögð fram og samþykkt að senda þau til annarra starfsnefnda til kynningar.

Málsnúmer 1401251

04

Reglur um hvatapeninga 2014

Skv. erindi frá bæjarráði er því beint til ÍTG að "taka til umfjöllunar endurskoðun á reglunum og móta skýrar hvaða íþrótta- og tómstundastarf fellur undir reglurnar".

Farið var yfir gildandi reglur um "hvatapeninga" og samþykkt að verða við beiðni ungmennaráðs um breytingu á 2. grein þannig að undantekningin nái til 16 ára auk 17 og 18 ára.$line$Ekki var talin ástæða til að gera aðrar breytingar á núverandi reglum vegna ársins 2014. Íþróttafulltrúa var falið að móta tillögu um skilyrði sem uppfylla þarf til að námskeið teljist gjaldgeng til hvatapeninga 2015.

Málsnúmer 1401703

05

Styrkbeiðni

Styrkbeiðni Skáksambands Íslands vegna Reykjavíkurskákmóts 2014

Styrkbeiðni Skáksambands Íslands vegna Reykjavíkurskákmóts 2014$line$Erindinu var hafnað.

Málsnúmer 1402318

06

Ferðastyrkir 2014

Umsóknir vegna ferða á árinu 2013:$line$2 ferðir - Hanna Rún Óladóttir kt. 1707902199 DSÍ Heimsmeistaramót- heimsbikarmót - Evrópubikarmót- Norðurevrópumeistaramót 2013 (30 nov.- oktob. - sept. - júní)$line$2 ferðir - Norma Dögg Róbertsdóttir kt. 1604962159 FSÍ EM, Smáþjóðleikar og HM (16 apríl, 30 maí, 25 sept.)$line$2 ferðir - Margrét Jóhannsdóttir kt. 1001952329 TSÍ European Junior Championships 2013, 20. mars Ankara, Tyrklandi. og European Mixed Team Championships 2013 í Rússlandi 10. feb 2013.

Umsóknir vegna ferðastyrkja með landsliði, hver ferð að upphæð kr. 20.000,-$line$2 ferðir - Hanna Rún Óladóttir kt. 1707902199 DSÍ Heimsmeistaramót- heimsbikarmót - Evrópubikarmót- Norðurevrópumeistaramót 2013 (30 nov.- oktob. - sept. - júní)$line$2 ferðir - Norma Dögg Róbertsdóttir kt. 1604962159 FSÍ EM, Smáþjóðaleikar og HM (16 apríl, 30 maí, 25 sept. 2013)$line$2 ferðir - Margrét Jóhannsdóttir kt. 1001952329 BSÍ - European Junior Championships 2013, 20. mars Ankara, Tyrklandi. og European Mixed Team Championships 2013 í Rússlandi 10. feb 2013.

Málsnúmer 1402317

07

Önnur mál 2014

a) GÁ vegna lands undir golfvöll á Álftanesi$line$b) ....$line$c) ....

a) Kynnt var bréf GÁ vegna lands undir golfvöll á Álftanesi en erindi um það efni er á leið frá klúbbnum til bæjarstjórnar.$line$b) Samþykkt var að greiða Umf. Stjörnunni kr.10.820.000,- vegna nýrrar stöðu framkvæmdastjóra og til að bæta nokkra liði í samningi félagsins í samræmi við ákvæði í samningi.