Oddur golfklúbbur
Ferill máls
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
01
37. fundur
Ingi Þór Hermannsson formaður Odds og Emil Emilsson framkvæmdastjóri klúbbsins komu og gerðu grein fyrir erfiðri rekstrarstöðu og forsendum þar að baki. Fram kom að félagsmenn eru 1150 alls, fjórðungur þeirra eru íbúar í Garðabæ, 37,2% félagsmanna eru konur og 4,3% eru í barna og unglingastarfinu. 200 félagsmenn eru einnig félagar í Oddfellow reglunni, en klúbburinn er algerlega aðskilinn frá þeim. Þrátt fyrir að félagsgjaldið sé hærra en hjá öðrum gerir það ekki annað en að duga fyrir leigugjaldi af landinu og vellinum til Oddfellow reglunnar. Farið er fram á að Garðabær aðstoði klúbbinn við að greiða leiguna af landinu með einhverjum hætti, að hluta eða öllu leiti.$line$Ljóst er að miðað við stærð og afköst vallarins er hann nú fullbókaður og þörf á stækkun um 9 holur. Bentu þeir félagar á að mikil tækifæri liggja í heils árs útivist fyrir bæjarbúa, t.d. með því að nýta stígakerfi vallarins og nágrennis.$line$Samþykkt var að skoða málið frekar og um leið leita lausna til lengri tíma.