Reglur um hvatapeninga 2014
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
9. fundur
Bæjarráð samþykkir reglur um hvatapeninga fyrir árið 2014.
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
02
37. fundur
Skv. erindi frá bæjarráði er því beint til ÍTG að "taka til umfjöllunar endurskoðun á reglunum og móta skýrar hvaða íþrótta- og tómstundastarf fellur undir reglurnar".
Farið var yfir gildandi reglur um "hvatapeninga" og samþykkt að verða við beiðni ungmennaráðs um breytingu á 2. grein þannig að undantekningin nái til 16 ára auk 17 og 18 ára.$line$Ekki var talin ástæða til að gera aðrar breytingar á núverandi reglum vegna ársins 2014. Íþróttafulltrúa var falið að móta tillögu um skilyrði sem uppfylla þarf til að námskeið teljist gjaldgeng til hvatapeninga 2015.
Bæjarráð Garðabæjar
03
3. fundur
Bæjarráð samþykkir að vísa til íþrótta- og tómstundaráðs að taka til umfjöllunar endurskoðun á reglunum og móta skýrar hvaða íþrótta- og tómstundastarf fellur undir reglurnar.$line$$line$Jafnframt er reglunum vísað til umfjöllunar ungmennaráðs og forvarnarnefndar.