9. fundur
9. fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
04.03.2014
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Erling Ásgeirsson - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
- Stefán Snær Konráðsson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Kristinn Guðlaugsson - áheyrnarfulltrúi
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
Ritari
- Guðjón E. Friðriksson
Dagskrá
Málsnúmer 1402630
01
Fyrirspurn Fólksins í bænum um rekstur einkarekinna skóla í Garðabæ, dags. 27.02.14.
Lagðar fram ársskýrslur Alþjóðaskólans og Barnaskóla Hjallastefnunnar þar sem grein er gerð fyrir starfsemi skólanna.$line$$line$Ársreikningur Hjallastefnunnar m.v. 31.07.2013 er lagður fram en ársreikningur Alþjóðaskólans liggur ekki fyrir.$line$$line$Lagður fram samningur við Alþjóðaskólann, en unnið er aðgerð nýs samnings í framhaldi af viðurkenningu ráðuneytisins á starfsemi skólans samkvæmt grunnskólalögum.$line$$line$Framangreind gögn ásamt frekari gögnum verða send bæjarfulltrúum.
Málsnúmer 1401251
02
Reglur um hvatapeninga 2014
Bæjarráð samþykkir reglur um hvatapeninga fyrir árið 2014.
Málsnúmer 1401722
03
Bréf sýslumannsins í Hafnarfirði varðandi umsögn um umsókn um gistileyfi að Hliðsnesvegi 6, dags. 29.01.14.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt en mælir með að það verði veitt til eins árs til reynslu.
Málsnúmer 1402465
04
Bréf velferðarráðuneytisins varðandi tekju- og eignamörk sem gilda um félagslegar íbúðir, dags. 21.02.14.
Lagt fram.
Málsnúmer 1402503
05
Þingsályktunartillaga um endurskoðun á lagaumhverfi er varðar uppkaup á landi, 277. mál
Lögð fram.
Málsnúmer 1402501
06
Þingsályktunartillaga um kaup ríkisins á Grímsstöðum á Fjöllum, 276. mál
Lögð fram.
Málsnúmer 1402317
07
Afgreiðsla íþrótta- og tómstundaráðs um styrkveitingu til UMF Stjörnunnar, dags. 14.02.14.
Samþykkt íþrótta- og tómstundaráðs um styrk til Stjörnunnar að fjárhæð kr. 10.820.000 lögð fram til kynningar í samræmi við ákvæði 2. gr. í viðauka I við samþykkt um stjórn Garðabæjar.
Málsnúmer 1309195
08
Bréf umhverfisstjóra um samþykkt umhverfisnefndar um stefnu varðandi trjágróður í Garðabæ, dags. 28.02.14.
Bæjarráð lýsir ánægju með samþykkt umhverfisnefndar um verkefnið trjágróður í Garðabæ og framlagða framkvæmdaáætlun.
Málsnúmer 1401051
09
Afgreiðslur byggingarfulltrúa tímabilið 21.02. - 28.02.2014.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslur byggingarfulltrúa á umsóknum um byggingarleyfi fyrir tímabilið 21.02. - 28.02.2014 og verða byggingarleyfi útgefin samkvæmt 2. gr. samþykktar um afgreiðslur byggingarnefndar Garðabæjar nr. 863/2011, sbr. 13. gr. mannvirkjalaga nr. 160/2010. Um er að ræða byggingarleyfi vegna framkvæmda við Hraungötu 1, Sunnuflöt 28 og afturköllun leyfis vegna Holtsvegar 27.
Málsnúmer 1402637
10
Bréf Lánasjóðs sveitarfélaga um framboð til stjórnar, dags. 28.02.14.
Lagt fram.
Málsnúmer 1304705
11
Bréf Skipulagsstofnunar varðandi staðfestingu á breytingu á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins 2001-2024.
Lagt fram bréf Skipulagsstofnunar þar sem greint er frá staðfestingu á breytingu á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins 2001 - 2024 vegna breytinga á aðalskipulagi sveitarfélaga.
Málsnúmer 1401773
12
Samþykkt kauptilboð í íbúðir við Lækjarfit 7.
Bæjarráð samþykkir eftirfarandi tilboð í íbúðir við Lækjarfit 7.$line$$line$Íbúð 207 1676 kr. 20.900.000$line$Íbúð 207 1678 kr. 21.600.000$line$$line$Bæjarstjóra falið að ganga frá kaupsamningum. Jafnframt er bæjarstjóra falið að leggja fram viðauka við fjárhagsáætlun 2014 vegna málsins samkvæmt ákvæðum sveitarstjórnarlaga.