3. fundur
3. fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
21.01.2014
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Erling Ásgeirsson - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
- Stefán Snær Konráðsson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Kristinn Guðlaugsson - áheyrnarfulltrúi
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
01
Bréf Alþýðusambands Íslands varðandi gjaldskrárhækkanir, dags. 13.01.14.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara bréfinu og gera bréfritara grein fyrir að við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2014 samþykkti bæjarstjórn að hækka ekki gjaldskrár vegna þjónustu við fjölskyldur í bænum.
02
Bréf íbúa í efri Lundum varðandi lóðarleigusamninga vegna fasteigna neðst í efri Lundum, dags. 10.01.14.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari athugunar bæjarstjóra.
03
Drög að reglum um hvatapeninga árið 2014.
Bæjarráð samþykkir að vísa til íþrótta- og tómstundaráðs að taka til umfjöllunar endurskoðun á reglunum og móta skýrar hvaða íþrótta- og tómstundastarf fellur undir reglurnar.$line$$line$Jafnframt er reglunum vísað til umfjöllunar ungmennaráðs og forvarnarnefndar.
04
Bréf Skáksambands Íslands og Skákakademíunni varðandi Skákdag Íslands 26. janúar 2014.
Bæjarráð vísar bréfinu til tómstundafulltrúa og íþrótta- og tómstundaráðs.
05
Urriðaholtsskóli - Tilboð í hönnun.
Úti og inni, Verkfræðistofa Jóhanns Indriðasonar, Arkitektastofan OG ehf., THG-arkitektar, Kanon arkitektar, VA arkitektar, Hornsteinar arkitektar, Arkþing, Teiknistofan Víðihlíð, Arkitektur.is, Arkís, Arkiteó, Einrúm arkitektar og Verkís.$line$$line$Verkefnastjórn vinnur nú að yfirferð tilboða og gefur viðkomandi aðilum einkunn fyrir eftirfarandi þætti. (mestur fjöldi stiga 60)$line$$line$a) Skipurit hönnunarhóps fyrir verkefnið ? mestur fjöldi stiga: 5 stig$line$b) Lýsing á hugmyndum að nálgun verkefnisins ? mestur fjöldi stiga: 25 stig$line$c) Vinnuferlar ? mestur fjöldi stiga: 10 stig$line$d) Frumleiki ? mestur fjöldi stiga: 20 stig$line$$line$Verðtilboð verða opnuð föstudaginn 24. janúar n.k. kl. 13:00.
06
Bréf íþróttafulltrúa varðandi fjölgun salerna í Ásgarði, ódags.
Bæjarráð vísar bréfinu til tækni- og umhverfissviðs.
07
Bréf fjármálaeftirlitsins varðandi eftirlitsgjald á útgefendur hlutabréfa og skuldabréfa árið 2014, dags. 15.01.14.
Lagt fram.
08
Bréf nefndarsviðs Alþingis varðandi frumvarp til laga um útlendinga (EES-reglur og kærunefnd), 249. mál, dags. 17.01.14.
Lagt fram.
09
Bréf sýslumannsins á Sauðárkróki varðandi niðurlagningu sjálfseignarstofnunarinnar Dvalar- og hjúkrunarheimilisins Holtsbúðar, dags. 16.01.14.
Í bréfinu kemur fram að fallist hefur verið á niðurlagningu sjálfeignarstofnunarinnar Dvalar og Hjúkrunarheimilisins Holtsbúðar þar sem bæjarstjórn Garðabæjar hefur samþykkt að taka við rekstrinum og halda rekstri hennar áfram í nafni Ísafoldar, hjúkrunarheimilis.
11
Bréf Henriks Biering Jónssonar varðandi óleyfisframkvæmdir við Ljósakur 8, dags. 14.01.14.
Í bréfinu er ábending um að verið sé að breyta geymslurýmum í kjallara í almennt íbúðarými með eldhúsi, bað- og svefnherbergi.$line$$line$Bæjarráð felur byggingarfulltrúa að rannsaka málið nánar með vettvangsskoðun. Jafnframt felur bæjarráð bæjarstjóra að gera eigendum húsnæðisins grein fyrir að samkvæmt lögum um mannvirki nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012 er óheimilt að breyta mannvirki eða breyta notkun þess nema að fengnu leyfi byggingaryfirvalda.
12
Bréf sýslumanns varðandi umsókn Fjörukráarinnar um leyfi til heimagistingar að Hliðsvegi 1, dags. 25.11.13.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að veitt verði leyfi til heimagistingar enda séu uppfyllt skilyrði 10. gr. reglugerðar um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald nr. 585/2007 um að umrædd gisting sé tengd einkaheimili leigusala.