Bréf byggingarfulltrúa varðandi úttekt á geymslurýmum að Ljósakri 2, 4, 6, og 8, dags. 12.06.14.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
24. fundur
Lögð fram greinargerð byggingarfulltrúa vegna úttektar á óleyfilegum framkvæmdum við innréttingar í 9 geymslurýmum af 12 í húsunum við Ljósakur 2 - 8. Í greinargerðinni kemur fram að rýmin hafa verið innréttuð sem vistaverur með snyrtiaðstöðu, eldhúskrók og svefnstæði. Þá kemur fram það álit eldvarnareftirlits að brunavarnir í viðkomandi rýmum séu ófullnægjandi en hvorki er brunahólfun né flóttaleiðir í samræmi við öryggisreglur.$line$$line$Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til skoðunar bæjarstjóra.
Bæjarráð Garðabæjar
02
19. fundur
Bæjarráð felur bæjarstjóra að fylgja eftir fyrri samþykkt bæjarráðs um fram fari úttekt byggingarfulltrúa og eldvarnareftirlits á geymslurýmum í kjöllurum viðkomandi húsa við Ljósakur 2-8, sem talið er að hafi verið innréttuð sem íbúðarrými án tilskilinna leyfa.
Bæjarráð Garðabæjar
03
3. fundur
Í bréfinu er ábending um að verið sé að breyta geymslurýmum í kjallara í almennt íbúðarými með eldhúsi, bað- og svefnherbergi.$line$$line$Bæjarráð felur byggingarfulltrúa að rannsaka málið nánar með vettvangsskoðun. Jafnframt felur bæjarráð bæjarstjóra að gera eigendum húsnæðisins grein fyrir að samkvæmt lögum um mannvirki nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012 er óheimilt að breyta mannvirki eða breyta notkun þess nema að fengnu leyfi byggingaryfirvalda.