Beint í efni

19. fundur

20.05.2014
Bæjarráð Garðabæjar

19. fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarráðs á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

20.05.2014

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Erling Ásgeirsson - aðalmaður
  • Steinþór Einarsson - aðalmaður
  • Stefán Snær Konráðsson - aðalmaður
  • María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Kristinn Guðlaugsson - áheyrnarfulltrúi
  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
  • Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson,

Dagskrá

Málsnúmer 1401315

01

Bréf eigenda íbúða við Ljósakur 2-8 varðandi breytta skilgreiningu á geymslum/tómstundarýmum í kjallara, dags 12.05.14.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að fylgja eftir fyrri samþykkt bæjarráðs um fram fari úttekt byggingarfulltrúa og eldvarnareftirlits á geymslurýmum í kjöllurum viðkomandi húsa við Ljósakur 2-8, sem talið er að hafi verið innréttuð sem íbúðarrými án tilskilinna leyfa.

Málsnúmer 1404518

02

Bréf umhverfisnefndar varðandi erindi um styrk vegna Yrkjusjóðs, dags. 13.05.14.

Bæjarráð samþykkir tillögu umhverfisnefndar um að veita styrk til Yrkjusjóðs að fjárhæð kr. 150.000.

Málsnúmer 1404342

03

Bæjarlistamaður Garðabæjar 2014.

Bæjarstjóri kynnti samþykkt menningar- og safnanefndar um val á bæjarlistamanni Garðabæjar árið 2014. Á menningarhátíð á Garðaholti fimmtudaginn 22. maí n.k. verður valið kunngjört.

Málsnúmer 1405200

04

Bréf nefndarsviðs Alþingis varðandi frumvarp til laga um opinber fjármál, 508. mál, dags. 13.05.14.

Lagt fram.

Málsnúmer 1404205

05

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts vestra vegna Furuáss 7,dags. 15.05.14.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á skipulagi Hraunsholts vestra (Ása) vegna stækkunar lóðarinnar við Furuás 7, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan skal grenndarkynnt eigendum Furuáss 5, 10, og 8, Grjótáss 6, 8, 10, og 12 og Brúnáss 1, 3, 5 og 7.

Málsnúmer 1403393

06

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Urriðaholts vesturhluta vegna Holtsvegar 27, dags. 15.05.14.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi Urriðaholts (vesturhluti) vegna færslu á byggingarreit lóðarinnar við Holtsveg 27, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan skal grenndarkynnt eigendum Holtsvegar 23-25 og 29, Hellagötu 31, Mosagötu 22 og 24, Keldugötu 2 og 4-6 og Bæjargötu 1.

Málsnúmer 1405209

07

Bréf Golfklúbbsins Odds varðandi kostnaðarþátttöku Garðabæjar í íþróttaaðstöðu golfklúbbsins, dags. 01.05.14.

Bæjarstjóri gerði grein fyrir viðræðum við forsvarsmenn golfklúbbsins um erindi þeirra að leita eftir þátttöku bæjarins í kostnaði við uppbyggingu á íþróttaaðstöðu klúbbsins.$line$$line$Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar íþrótta- og tómstundaráðs.

Málsnúmer 1306309

08

Skýrsla leikskólans Sunnuhvols um þróunarverkefni.

Lögð fram til kynningar.

Málsnúmer 1405201

09

Bréf íþróttafulltrúa varðandi opnunartími Álftaneslaugar, dags. 13.05.14.

Í bréfinu er lagt til að breyta opnunartíma Álftaneslaugar og hafa opið frá 06:30 til 21:00 virka daga og frá kl. 09:00 - 19:00 um helgar. $line$$line$Bæjarráð samþykkir tillögu um breyttan opnunartíma tímabilið 31. maí - 31. ágúst 2014.

Málsnúmer 1401001

10

Gerð og staðfesting kjörskrár vegna sveitarstjórnarkosninga 31. maí 2014.

Bæjarritari lagði fram eintak af kjörskrá fyrir Garðabæ vegna sveitarstjórnarkosninga sem fram eiga að fara 31. maí 2014.$line$$line$Á kjörskrá eru 10.448 kjósendur, þar af 5.083 karlar og 5.365 konur. Kjósendum á kjörskrá hefur fjölgað um 918 eða um 9,6% fá síðustu sveitarstjórnarkosningum árið 2010. (Garðabær og Álftanes)$line$$line$Bæjarráð staðfestir með vísan 7. gr. laga um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998 kjörskrá Garðabæjar til að gilda við sveitarstjórnarkosningar 31. maí 2014.$line$$line$Kjörskráin skal auglýst og liggja fram almenningi til sýnis í þjónustuveri Garðabæjar í Ráðhúsinu við Garðatorg frá 21. maí til kjördags.

Málsnúmer 1405170

11

Afgreiðsla byggingarfulltrúa á umsókn um byggingarleyfi fyrir Bæjargötu 1-9, dags. 13.05.14.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa á byggingarleyfi vegna leiðrétts hæðarkóta fyrir lóðina við Bæjargötu 1-9.

Málsnúmer 1304729

12

Skýrsla um verkefnið: "Námsbók barnsins"

Lögð fram til kynningar.

Málsnúmer 1405254

13

Bréf Kristínar S. Sigurleifsdóttur varðandi lóðina við Miðskóga 8, dags. 16.05.14.

Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjóra.

Málsnúmer 1404325

14

Samstarf við Dægradvöl, áhugamannafélag um menningu og listir.

Bæjarráð vísar til bæjarstjóra að hefja viðræður við forsvarsmenn félagsins um gerð samstarfssamning

Málsnúmer 1405161

15

Bréf Landsnets varðandi kynningu á drögum að umhverfisskýrslu kerfisáætlunar 2014-2023, dags. 12.05.14.

Lagt fram.

Málsnúmer 1308500

16

Bréf Gunnars Árnasonar varðandi lóðina við Miðskóga 8, dags. 15.05.14.

Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjóra.

Málsnúmer 1405261

17

Tillaga bæjarfulltrúa Steinþórs Einarssonar um aðstöðu fyrir strandblakvelli, dags. 15.05.14.

Bæjarráð samþykkir tillöguna og vísar til bæjarstjóra að láta gera kostnaðaráætlun vegna gerð strandblakvalla á Ásgarðssvæðinu og Álftanesi.

Málsnúmer 1402012

18

Bréf upplýsingafulltrúa varðandi úthlutun úr Hvatningarsjóði ungra listamanna 2014, dags. 16.05.14.

Lagt fram bréf menningar- og safnanefndar um eftirfarandi úthlutun styrkja úr Hvatningarsjóði ungra listamanna.$line$$line$Aríal J. Árnason, kt. 140389-2189, Norðurbrú 3 kr. 150.000 vegna stuttmyndagerðar.$line$Anna Gréta Sigurðardóttir, kt. 230894-2569, Ásbúð 53 kr. 150.000 vegna hljómplötugerðar$line$Silja Hinriksdóttir, kt. 171189-3149, Þrastarlundi 19 kr. 150.000 vegna myndlistarsýningar

Málsnúmer 1405264

19

Minnisblað forstöðumanns fræðslu- og menningarsviðs varðandi heilbrigði og velferð í Garðabæ.

Forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs gerði grein fyrir verkefninu ?heilbrigði og velferð í Garðabæ en megin markmiðin eru að skapa heilsueflandi samfélag fyrir alla bæjarbúa. Helstu áhersluatriði eru góð næring og hreyfing til að stuðla að vellíðan og lífsgæðum allra bæjarbúa.$line$$line$Bæjarráð samþykkir að vísa minnisblaði um heilbrigði og velferð í Garðabæ til umfjöllunar íþrótta- og tómstundaráðs, ungmennaráðs og nefndar um málefni eldri bæjarbúa.

Málsnúmer 1404324

20

Drög að samstarfssamningi við Grósku.

Bæjarráð samþykkir samstarfssamning við Grósku þar sem fram kemur að bærinn styrkir starfsemi samtakanna á árinu 2014 og 2015 að fjárhæð kr. 1.500.000, hvort ár.

Málsnúmer 1403069

21

Kauptilboð í húsnæði fyrir bæjarstjórnarsal o.fl.

Lagt fram gagntilboð eigenda að fjárhæð kr. 30,8 mkr. $line$$line$Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra umboð til að gera nýtt tilboð í eignina.