Beint í efni

Tillaga um breytingu á deiliskipulag Hraunsholts vestra varðandi lóðina við Furuás 7.

Málsnúmer 1404205

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

28. fundur

Bæjarráð samþykkir tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Hraunholts vestra varðandi lóðina við Furuás 7. Grenndarkynning fór fram samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga, sbr. 2. mgr. 43. gr. og var tillagan kynnt eigendum lóðanna Furuáss 5, 8 og 10, Grjótáss 6, 8, 10 og 12 og Brúnáss 1, 3, 5 og 7.$line$$line$Í tillögunni felst að lóðin við Furuás 7 stækkar til austurs sem nemur 62,4 m² (úr 802 m² í 864,4 m² ). Byggingarreitur stækkar en fjarlægð frá lóðarmörkum helst óbreytt. Að öðru leyti gilda skilmálar deiliskipulags Hraunsholts vestra (Ásahverfis).$line$$line$Ástæða breytingartillögunnar er fyrirhuguð viðbygging.$line$$line$Samþykkt bæjarráðs um breytingu á deiliskipulagi skal send Skipulagsstofnun.

Bæjarráð Garðabæjar

02

19. fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á skipulagi Hraunsholts vestra (Ása) vegna stækkunar lóðarinnar við Furuás 7, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan skal grenndarkynnt eigendum Furuáss 5, 10, og 8, Grjótáss 6, 8, 10, og 12 og Brúnáss 1, 3, 5 og 7.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

9. fundur

Lögð fram öðru sinni tillaga að breytingu deiliskipulags Hraunsholts vestra (Ása) þar sem gert er ráð fyrir stækkun á lóðinni Furuás 7.$line$Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts vestra samkvæmt 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar. Grenndarkynna skal eigendum Furuáss 5, 10 og 8, Grjótáss 6,8,10 og 12 og Brúnáss 1,3,5 og 7.$line$Sigríður Dís Guðjónsdóttir sat hjá við samþykkt tillögunnar.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

7. fundur

Lögð fram umsókn lóðarhafa að Furuási 7 um breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts vestra (Ása) sem gerir ráð fyrir stækkun lóðar út á opið svæði og stækkun byggingarreits.$line$Vísað til frekari skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.