28. fundur
28. fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
22.07.2014
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
- Gunnar Valur Gíslason - varamaður
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
Ritari
- Guðjón E. Friðriksson
Dagskrá
01
Umsókn um afturköllun á byggingarleyfi - Sunnakur 4
Bæjarráð samþykkir afturköllun byggingarleyfis vegna byggingar einbýlishús að Sunnakri 4 sem samþykkt var á fundi bæjarráðs 26.11.2013.
02
Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi ályktanir 9. fundar Sveitarstjórnarvettvangs EFTA, dags. 10.07.14.
Lagt fram.
03
Tillaga um breytingu á deiliskipulag Hraunsholts vestra varðandi lóðina við Furuás 7.
Bæjarráð samþykkir tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Hraunholts vestra varðandi lóðina við Furuás 7. Grenndarkynning fór fram samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga, sbr. 2. mgr. 43. gr. og var tillagan kynnt eigendum lóðanna Furuáss 5, 8 og 10, Grjótáss 6, 8, 10 og 12 og Brúnáss 1, 3, 5 og 7.$line$$line$Í tillögunni felst að lóðin við Furuás 7 stækkar til austurs sem nemur 62,4 m² (úr 802 m² í 864,4 m² ). Byggingarreitur stækkar en fjarlægð frá lóðarmörkum helst óbreytt. Að öðru leyti gilda skilmálar deiliskipulags Hraunsholts vestra (Ásahverfis).$line$$line$Ástæða breytingartillögunnar er fyrirhuguð viðbygging.$line$$line$Samþykkt bæjarráðs um breytingu á deiliskipulagi skal send Skipulagsstofnun.
04
Fyrirspurn frá Fólkinu í bænum varðandi skólamál, dags. 15.07.2014.
Lögð fram fyrirspurn frá Fólkinu í bænum þar sem farið er fram á upplýsingar um niðurstöður í síðustu tveimur PISA könnunum (2009 og 2012) í skólum í Garðabæ sem við á.$line$$line$Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara fyrirspurninni.
05
Umsókn um byggingarleyfi - Lyngás 8
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa vegna breytinga á innréttingum og hurðum á efri hæð við Lyngás 8.
06
Umsókn um byggingarleyfi - Smáraflöt 40
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa á endurnýjun byggingarleyfis vegna viðbyggingar við einbýlishúsið að Smáraflöt 40.
08
Minnisblað forstöðumanns Ísafoldar um fjölgun dagdvalargesta á Ísafold, dags. 17.07.14.
Félagsmálastjóri kynnti minnisblað forstöðumanns Ísafoldar varðandi fjölgun dvalargesta í dagdvöl.$line$Í minnisblaðinu kemur fram að með fjölguninni mun nást fram hagræðing í rekstri dagdvalar en samhliða er nauðsynlegt fjölga hvíldarstólum. Áætlaður kostnaður vegna þess er um 1,6 mkr sem fjármagnaður verður af fjárveitingu til búnaðarkaupa samkvæmt fjárhagsáætlun 2014.$line$Bæjarráð samþykkir ráðstöfun fjárveitingar af búnaðarkaupum samkvæmt fjárhagsáætlun 2014.
09
Bréf Sambands ísl. sveitarfélaga varðandi málþing um þjónustu við nýja íbúa af erlendum uppruna 14.nóv 2014, dags. 16.07.14.
Lagt fram.
10
Bréf Birgis Guðmundssonar varðandi ábendingu um nauðsynlegar lagfæringar á varnagarði við Skógtjörn á Álftanesi, dags. 04.07.14.
Bæjarráð vísar bréfinu til tækni- og umhverfissviðs.
11
Leigusamningur um húsnæði sýningarsalar við Garðatorg 7.
Bæjarráð samþykkir samninginn fyrir sitt leyti og felur bæjarstjóra afgreiðslu málsins.