Beint í efni

Bæjarlistamaður Garðabæjar 2014.

Málsnúmer 1404342

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

19. fundur

Bæjarstjóri kynnti samþykkt menningar- og safnanefndar um val á bæjarlistamanni Garðabæjar árið 2014. Á menningarhátíð á Garðaholti fimmtudaginn 22. maí n.k. verður valið kunngjört.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

02

3. fundur

Umræðu haldið áfram frá síðasta fundi.$line$Menningar- og safnanefnd samþykkir að leggja til við bæjarráð að einn listamaður verði útnefndur bæjarlistamaður Garðabæjar. Þá leggur nefndin til að útnefningin verði tilkynnt á menningaruppskeruhátíð fimmtudaginn 22. maí nk. og fer þess jafnframt á leit við þá aðila sem að málinu koma að nafn listamannsins verði haldið leyndu þangað til.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

03

2. fundur

Auglýst var eftir ábendingum um bæjarlistamann Garðabæjar í Garðapóstinum og á vef Garðabæjar. Áfram verður hægt að senda inn ábendingar fram að næsta fundi nefndarinnar í maí. Umræða var um bæjarlistamann og málið verður tekið fyrir aftur á næsta fundi.