Beint í efni

3. fundur

13.05.2014
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

3. fundur

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

í miðrými 3. hæð á bæjarskrifstofum Garðabæjar við Garðatorg

13.05.2014

Kl. 16:15 - 16:30

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Steinunn Vala Sigfúsdóttir - aðalmaður
  • Björn Már Ólafsson - aðalmaður
  • Sigurjóna Sverrisdóttir - aðalmaður
  • Kristín B Björgvinsdóttir - varamaður
  • Kristín Fjóla Bergþórsdóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Hulda Hauksdóttir - upplýsingafulltrúi

Ritari

  • Hulda Hauksdóttir

Birna Ólafsdóttir boðaði forföll.

Dagskrá

Málsnúmer 1404342

01

Bæjarlistamaður Garðabæjar 2014

Umræðu haldið áfram frá síðasta fundi.$line$Menningar- og safnanefnd samþykkir að leggja til við bæjarráð að einn listamaður verði útnefndur bæjarlistamaður Garðabæjar. Þá leggur nefndin til að útnefningin verði tilkynnt á menningaruppskeruhátíð fimmtudaginn 22. maí nk. og fer þess jafnframt á leit við þá aðila sem að málinu koma að nafn listamannsins verði haldið leyndu þangað til.

Málsnúmer 1402012

02

Hvatningarsjóður ungra listamanna 2014

Farið var yfir og rætt um þær umsóknir sem bárust í Hvatningarsjóð ungra listamanna. Ákveðin var úthlutun til eftirtalinna einstaklinga sem fá afhent viðurkenningarskjal þar um á menningaruppskeruhátíð fimmtudaginn 22. maí. Gerðir verða samningar við ungmennin um úthlutun úr sjóðnum og skilyrði styrkveitingar. $line$Aríel J. Árnason, kt. 140389-2189, upphæð 150 þúsund krónur vegna gerð stuttmyndar.$line$Anna Gréta Sigurðardóttir, kt. 230894-2569, upphæð 150 þúsund krónur vegna hljómplötugerðar.$line$Silja Hinriksdóttir, kt. 171189-3149, upphæð 150 þúsund krónur vegna myndlistarsýningar.

Málsnúmer 1402015

03

Uppskeruhátíð menningar- og lista 2014

Menningaruppskeruhátíð verður haldin í þriðja sinn fimmtudaginn 22. maí nk. í samkomuhúsinu á Garðaholti. Félagsmenn í Grósku ætla enn á ný að setja upp örsýningu þetta kvöld í hlöðunni við Krók. Rætt var um dagskrá og útfærslu á henni. Eins og fyrri ár var samþykkt að veita eina sérstaka heiðursviðurkenningu að þessu sinni á sviði byggingarlistar.

Málsnúmer 1404324

04

Samstarf við Grósku

Farið var yfir drög að samstarfssamningi við Grósku sem verður lagður fyrir bæjarráð Garðabæjar. Stefnt að undirritun samstarfssamnings á menningaruppskeruhátíðinni 22. maí nk.

Málsnúmer 1402013

05

Jazzhátíð Garðabæjar 2014

Farið var yfir hvernig til tókst með Jazzhátíð Garðabæjar sem var haldin í níunda sinn dagana 24.-26. apríl sl. Hátíðin fór að mestu fram í safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli en jafnframt voru tónleikar í Jónshúsi og Haukshúsi. Góð aðsókn var á tónleika jazzhátíðarinnar og almenn ánægja með hátíðina. $line$Nefndin þakkar sérstaklega Sigurði Flosasyni listrænum stjórnanda fyrir hans framlag að hátíðinni en hann hefur verið listrænn stjórnandi fá upphafi.

Málsnúmer 1305109

06

Listadagar barna og ungmenna 2014

Rætt var um hvernig til tókst með Listadaga barna og ungmenna sem voru haldnir í sjötta sinn í lok apríl byrjun maí. Föstudaginn 2. maí var haldin listadagahátíð á Vífilsstaðatúni þar sem elstu börn leikskóla og nemendur úr grunnskóla mættu til að syngja saman, horfa á sirkusatriði o.fl. Nefndin ræddi um að æskilegt væri að Listadagar barna og ungmenna yrðu að árlegum viðburði og hægt væri að skoða hvernig útfærslur af því myndu henta skólastarfinu.

Málsnúmer 1309206

07

Þriðjudagsklassík

Tónleikaröðin Þriðjudagsklassík er nú haldin annað vorið í röð og þriðjudaginn 6. maí sl. voru tónleikar með Peter Tompkins óbóleikara og Valgerði Andrésdóttur píanóleikara í sal Tónlistarskólans. Rætt var um hvernig gekk. Næstu og síðustu tónleikar í tónleikaröðinni verða haldnir þriðjudaginn 3. júní nk. þegar Ágúst Ólafsson söngvari og Eva Þyrí Hilmarsdóttir píanóleikari stíga á svið.

Málsnúmer 1405186

08

Minjagarður Hofsstöðum 10 ára - dagskrá

Umhverfisnefnd hefur árlega verið með fræðslugöngur og að þessu sinni verður fræðsluganga miðvikudaginn 21. maí nk. kl. 20 sem hefst við minjagarðinn á Hofsstöðum undir leiðsögn Ragnheiðar Traustadóttur fornleifafræðings. Gangan verður að þessu sinni í samstarfi við menningar- og safnanefnd. Að lokinni leiðsögn í minjagarðinum verður boðið upp á rútu í Kauptún þaðan sem gengið verður að Urriðakoti og sagt frá fornleifum og sögu staðarins.

Málsnúmer 1301119

09

Önnur mál

Formaður þakkaði nefndinni fyrir skemmtilegt og árangursríkt samstarf og færði Huldu Hauksdóttur sérstakar þakkir fyrir hennar framlag og vel unnin störf.