Jazzhátíð Garðabæjar 2014
Ferill máls
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
01
3. fundur
Farið var yfir hvernig til tókst með Jazzhátíð Garðabæjar sem var haldin í níunda sinn dagana 24.-26. apríl sl. Hátíðin fór að mestu fram í safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli en jafnframt voru tónleikar í Jónshúsi og Haukshúsi. Góð aðsókn var á tónleika jazzhátíðarinnar og almenn ánægja með hátíðina. $line$Nefndin þakkar sérstaklega Sigurði Flosasyni listrænum stjórnanda fyrir hans framlag að hátíðinni en hann hefur verið listrænn stjórnandi fá upphafi.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
02
2. fundur
Upplýsingafulltrúi fór yfir undirbúning vegna Jazzhátíðar Garðabæjar sem fer fram dagana 24.-26. apríl nk. Kvöldtónleikar verða að þessu sinni haldnir í safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli en auk þess verða tónleikar í Jónshúsi og Haukshúsi.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
03
1. fundur
Sigurður Flosason tónlistarmaður og listrænn stjórnandi Jazzhátíðar Garðabæjar var gestur fundarins undir þessum dagskrárlið.$line$Jazzhátíð Garðabæjar verður nú haldin í níunda sinn í vor, dagana 24.-27. apríl. Rætt var um hvernig dagskrá hefur verið á jazzhátíðinni og Sigurður greindi frá ýmsum hugmyndum sem eru í vinnslu varðandi dagskrána í ár. Áfram er áhugi fyrir því að hafa tónleika fyrir eldri borgara í Jónshúsi í samstarfi við Félag eldri borgara. $line$Það hefur verið jákvætt að tengja ungmenni við hátíðina með því að bjóða nemendum úr Tónlistarskóla Garðabæjar og öðrum ungum listamönnum að koma fram sem upphitunaratriði eða að hafa sérstaka ungmennatónleika. Umræða var um jazzhátíðina almennt, umgjörð og atriði. Sigurði var þakkað fyrir komuna á fundinn og jafnframt lýstu nefndarmenn yfir ánægju sína með að hafa hann áfram í hlutverki listræns stjórnanda hátíðarinnar.