Beint í efni

2. fundur

22.04.2014
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

2. fundur

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

í fundarherbergi 5. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

22.04.2014

Kl. 16:30 - 16:30

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Steinunn Vala Sigfúsdóttir - aðalmaður
  • Birna Ólafsdóttir - aðalmaður
  • Björn Már Ólafsson - aðalmaður
  • Kristín Fjóla Bergþórsdóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Hulda Hauksdóttir - upplýsingafulltrúi

Ritari

  • Hulda Hauksdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 1404325

01

Samstarf við Dægradvöl

Iðunn Thors og Svana Stefánsdóttur mættu á fundinn f.h. stjórnar Dægradvalar.

Iðunn Thors og Svana Stefánsdóttir fóru yfir sögu og starfssemi félagsins Dægradvalar á Álftanesi og samstarf þess við sveitarfélagið Álftanes á sínum tíma. Félagið hefur staðið fyrir ýmsum menningarviðburðum á Álftanesi í gegnum tíðina. Dægradvöl er nú í samstarfi við FONÁ, Fugla- og náttúruverndarfélag Álftaness og Félag áhugafólks um skólahald á Bessastöðum. $line$Rætt var um hugsanleg framtíðaráform Dægradvalar og mögulegt samstarf við bæinn í formi samstarfssamnings. Nefndin tók vel í samstarf og unnið verður að undirbúningi samstarfssamnings.

Málsnúmer 1402013

02

Jazzhátíð Garðabæjar 2014

Upplýsingafulltrúi fór yfir undirbúning vegna Jazzhátíðar Garðabæjar sem fer fram dagana 24.-26. apríl nk. Kvöldtónleikar verða að þessu sinni haldnir í safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli en auk þess verða tónleikar í Jónshúsi og Haukshúsi.

Málsnúmer 1305109

03

Listadagar barna og ungmenna 2014

Greint var frá undirbúningi vegna Listadaga barna og ungmenna og dagskrá sem verður kynnt á heimasíðu Garðabæjar auk þess sem dagskrárbæklingi verður dreift í öll hús í Garðabæ. Rætt var um að fara yfir með skólum möguleika á því að hafa listadaga árlega fljótlega að loknum listadögum í vor og þá með hvaða hætti árlegir listadagar barna og ungmenna verða.

Málsnúmer 1404324

04

Samstarf við Grósku

Formaður greindi frá fundi með nýjum formanni Grósku og meðstjórnanda þar sem farið var yfir það sem framundan er hjá Grósku eins og vorsýningu, Jónsmessugleði o.fl. Stefnt er að útbúa nýjan samstarfssamning við Grósku um áframhaldandi samstarfs. Samningurinn verður lagður fram á næsta fundi og stefnt að undirritun á árlegri menningaruppskeruhátíð síðari hluta maí mánaðar.

Málsnúmer 1404346

05

Söguganga bókasafnsins vor 2014

Árleg söguganga Bókasafns Garðabæjar í samstarfi við menningar- og safnanefnd er að þessu sinni einnig í samstarfi við Tónlistarskóla Garðabæjar í tilefni af 50 ára afmælis skólans. Sögugangan verður farin laugardaginn 3. maí frá bókasafninu á Garðatorgi, gengið verður um söguslóðir Tónlistarskólans og endað á örtónleikum í sal Tónlistarskólans að lokinni göngu. Gangan verður einnig auglýst sem hluti af dagskrá Listadaga barna og ungmenna.

Málsnúmer 1309206

06

Þriðjudagsklassík

Fyrstu tónleikarnir í tónleikaröðinni Þriðjudagsklassík í Garðabæ fóru fram þriðjudaginn 1. apríl sl. Þá komu fram Sigrún Eðvaldsdóttir fiðluleikari, Bryndís Halla Gylfadóttir sellóleikari og Domenico Codispoti píanóleikari. Tónleikarnir tókust afar vel og það var ágætis aðsókn. Næstu tónleikar verða haldnir þriðjudagskvöldið 6. maí nk. í sal Tónlistarskólans og þá stíga á svið Peter Tompkins óbóleikari og Valgerður Andrésdóttir píanóleikari. Síðustu tónleikarnir í tónleikaröðinni verða haldnir þriðjudaginn 3. júní en þá koma fram Ágúst Ólafsson baritónsöngvari og Eva Þyrí Hilmarsdóttir píanóleikari.

Málsnúmer 1402012

07

Hvatningarsjóður ungra listamanna 2014

Auglýst var eftir umsóknum úr Hvatningarsjóði ungra listamanna í mars í Garðapóstinum og á vef Garðabæjar. Fáar umsóknir hafa borist til þessa og ákveðið var að framlengja umsóknarfrestinn og taka málið aftur fyrir á næsta fundi í maí.

Málsnúmer 1404342

08

Bæjarlistamaður Garðabæjar 2014

Auglýst var eftir ábendingum um bæjarlistamann Garðabæjar í Garðapóstinum og á vef Garðabæjar. Áfram verður hægt að senda inn ábendingar fram að næsta fundi nefndarinnar í maí. Umræða var um bæjarlistamann og málið verður tekið fyrir aftur á næsta fundi.

Málsnúmer 1402015

09

Uppskeruhátíð menningar- og lista 2014

Farið var yfir hvernig dagskrá hefur verið síðustu ár á menningaruppskeruhátíðunum sem hafa verið haldnar í samkomuhúsinu á Garðaholti. Búið er að taka frá samkomuhúsið fimmtudaginn 22. maí nk. Stefnt er að því að hafa áfram örmyndlistasýningu Grósku í fjósi og hlöðu við Krók á Garðaholti samhliða menningaruppskeruhátíðinni. Nánar verður farið yfir dagskrá á næsta fundi.