Listadagar barna og ungmenna 2014
Ferill máls
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
01
3. fundur
Rætt var um hvernig til tókst með Listadaga barna og ungmenna sem voru haldnir í sjötta sinn í lok apríl byrjun maí. Föstudaginn 2. maí var haldin listadagahátíð á Vífilsstaðatúni þar sem elstu börn leikskóla og nemendur úr grunnskóla mættu til að syngja saman, horfa á sirkusatriði o.fl. Nefndin ræddi um að æskilegt væri að Listadagar barna og ungmenna yrðu að árlegum viðburði og hægt væri að skoða hvernig útfærslur af því myndu henta skólastarfinu.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
02
2. fundur
Greint var frá undirbúningi vegna Listadaga barna og ungmenna og dagskrá sem verður kynnt á heimasíðu Garðabæjar auk þess sem dagskrárbæklingi verður dreift í öll hús í Garðabæ. Rætt var um að fara yfir með skólum möguleika á því að hafa listadaga árlega fljótlega að loknum listadögum í vor og þá með hvaða hætti árlegir listadagar barna og ungmenna verða.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
03
4. fundur
<DIV>Listadagar barna og ungmenna hafa undanfarin ár verið haldnir á tveggja ára fresti. Næstu listadagar barna og ungmenna eru fyrirhugaðir vorið 2014. Á næstunni er ætlunin að kynna þetta fyrir skólastjórum leik- og grunnskóla og allir skólar tilnefna tengilið/i fyrir undirbúninginn. </DIV><DIV>Umræður voru um listadagana og rætt um menningarviðburði sem gætu verið í boði fyrir alla fjölskylduna. </DIV><DIV> </DIV>