Beint í efni

4. fundur

08.05.2013
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

4. fundur

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

í miðrými 3. hæð á bæjarskrifstofum Garðabæjar við Garðatorg

08.05.2013

Kl. 16:30 - 16:30

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Steinunn Vala Sigfúsdóttir - aðalmaður
  • Birna Ólafsdóttir - aðalmaður
  • Sigurjóna Sverrisdóttir - aðalmaður
  • Kristín Fjóla Bergþórsdóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Hulda Hauksdóttir - upplýsingafulltrúi

Ritari

  • Hulda Hauksdóttir

Björn Már Ólafsson boðaði forföll.

Dagskrá

Málsnúmer 1203688

01

Samstarf við Grósku

Gróska hélt nýverið vel heppnaða sumarsýningu á Garðatorgi sem var vel sótt. Undirbúningur fyrir Jónsmessugleði í júní er hafinn hjá Gróskufélögum. Fulltrúar úr stjórn Grósku munu koma síðar á fund með menningar- og safnanefnd til að ræða samstarfið og menningarmál almennt.

Málsnúmer 1210093

02

Þriðjudagsklassík

Tvennir tónleikar hafa verið haldnir í tónleikaröðinni Þriðjudagsklassík á vorönn í sal Tónlistarskóla Garðabæjar. Síðari tónleikarnir fóru fram þriðjudaginn 7. maí þar og voru ágætlega sóttir. Næstu tónleikar í tónleikaröðinni verða haldnir þriðjudaginn 4. júní þegar Ingibjörg Guðjónsdóttir sópransöngkona og listrænn stjórnandi stígur á svið.

Málsnúmer 1305109

03

Listadagar barna og ungmenna 2014

Listadagar barna og ungmenna hafa undanfarin ár verið haldnir á tveggja ára fresti. Næstu listadagar barna og ungmenna eru fyrirhugaðir vorið 2014. Á næstunni er ætlunin að kynna þetta fyrir skólastjórum leik- og grunnskóla og allir skólar tilnefna tengilið/i fyrir undirbúninginn. Umræður voru um listadagana og rætt um menningarviðburði sem gætu verið í boði fyrir alla fjölskylduna.

Málsnúmer 1305021

04

Styrkbeiðni Dísu Bjarnadóttur vegna stuttmyndagerðar

Bréf Dísu Bjarnadóttur varðandi styrk vegna stuttmyndagerðar, dags. 24.04.13, lagt fram. Bréfið var tekið fyrir í bæjarráði Garðabæjar 7. maí og vísað til menningar- og safnanefndar.

Menningar- og safnanefnd getur ekki orðið við erindinu.

Málsnúmer 1305087

05

Umsókn um styrk vegna sýninga í Garðabæ sumarið 2013

Lagt fram bréf frá Leikhópnum Lottu varðandi sýningahald á leikverkinu Gilitrutt í Garðabæ, dags. 2. maí 2013.

<P>Leikhópurinn Lotta hefur óskað eftir því að fá að sýna verkið Gilitrutt á Vífilsstaðatúní fimmtudaginn 20. júní og þriðjudaginn 13. ágúst.</P><P>Leyfi hefur fengist fyrir leikhópinn til að sýna verkið á Vífilsstaðatúni eins og undanfarin ár. Menningar- og safnanefnd samþykkir að styrkja sýningarhaldið um 50 000 kr. </P><P> </P>

Málsnúmer 1304605

06

Uppskeruhátíð menningar- og lista 2013

Menningaruppskeruhátíð verður haldin í annað sinn fimmtudaginn 30. maí nk. í samkomuhúsinu á Garðaholti. Rætt var um dagskrá og hvernig til hefði tekist í fyrra í fyrsta sinn. Félagsmenn í Grósku ætla að setja upp örsýningu á myndlist í hlöðunni við Krók eins og í fyrra. Rætt var um nánari útfærslu dagskrár í ár og unnið verður áfram að því.

Málsnúmer 1304580

07

Hvatningarsjóður fyrir unga listamenn 2013

Auglýst var eftir umsóknum úr hvatningarsjóði fyrir unga listamenn vorið 2013. Lagðar voru fram umsóknir í Hvatningarsjóðinn.

Farið var yfir og rætt um þær umsóknir sem bárust í Hvatningarsjóð ungra listamanna. Ákveðin var úthlutun til nokkurra einstaklinga úr hvatningarsjóðnum og fá þeir afhent viðurkenningarskjal þar um á menningaruppskeruhátíð fimmtudaginn 30. maí nk. Í samræmi við umræður verða nokkrar umsóknir skoðaðar nánar og nefndarmenn upplýstir um niðurstöðu í framhaldinu.

Málsnúmer 1304581

08

Bæjarlistamaður Garðabæjar 2013

Auglýst var eftir ábendingum um hver skuli hljóta tilnefningu til bæjarlistamanns Garðabæjar í mars. Farið var yfir ábendingar um bæjarlistamann og umræða um málið. Menningar- og safnanefnd Garðabæjar samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að einn listamaður verði útnefndur bæjarlistamaður Garðabæjar. Þá leggur nefndin til að útnefningin verði tilkynnt á menningaruppskeruhátíð fimmtudaginn 30. maí nk. og fer þess jafnframt á leit við þá aðila sem að málinu koma að nafn listamannsins verði haldið leyndu þangað til.