Hvatningarsjóður fyrir unga listamenn 2013
Ferill máls
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
01
4. fundur
Auglýst var eftir umsóknum úr hvatningarsjóði fyrir unga listamenn vorið 2013. Lagðar voru fram umsóknir í Hvatningarsjóðinn.

Farið var yfir og rætt um þær umsóknir sem bárust í Hvatningarsjóð ungra listamanna. Ákveðin var úthlutun til nokkurra einstaklinga úr hvatningarsjóðnum og fá þeir afhent viðurkenningarskjal þar um á menningaruppskeruhátíð fimmtudaginn 30. maí nk. Í samræmi við umræður verða nokkrar umsóknir skoðaðar nánar og nefndarmenn upplýstir um niðurstöðu í framhaldinu.

Bæjarráð Garðabæjar
02
18. fundur

Bæjarráð vísar tillögum að breytingum á reglum um Hvatningarsjóð fyrir unga listamenn til afgreiðslu bæjarstjórnar.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" /><o:p></o:p>

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
03
3. fundur

Rætt var um útfærslu á Hvatningarsjóði fyrir unga listamenn og reglur sem hafa verið endurskoðaðar árlega.
Samþykkt var að bæta inn í reglurnar ákvæði um að styrkur úr hvatningarsjóði væri ekki ætlaður til náms eða námskeiða. Auglýst verður eftir umsóknum úr sjóðnum í Garðapóstinum og á vefsíðu Garðabæjar. Farið verður yfir umsóknir í maí og úthlutun úr sjóðnum verður tilkynnt formlega á uppskeruhátíð menningar- og lista í lok maí.