Beint í efni

3. fundur

22.04.2013
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

3. fundur

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

22.04.2013

Kl. 16:30 - 16:30

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Steinunn Vala Sigfúsdóttir - aðalmaður
  • Björn Már Ólafsson - aðalmaður
  • Sigurjóna Sverrisdóttir - aðalmaður
  • Kristín Fjóla Bergþórsdóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Hulda Hauksdóttir - upplýsingafulltrúi

Ritari

  • Hulda Hauksdóttir

Birna Ólafsdóttir boðaði forföll.

Dagskrá

Málsnúmer 1210093

01

Þriðjudagsklassík - tónleikaröð í samstarfi við Ingibjörgu Guðjónsdóttur

Fyrstu tónleikarnir í tónleikaröðinni er nefnist Þriðjudagsklassík í Garðabæ voru haldnir þriðjudaginn 2. apríl í sal Tónlistarskóla Garðabæjar. Tónleikarnir voru ágætlega sóttir og mæltust vel fyrir. Tvennir tónleikar í viðbót eru fyrirhugaðir á vorönn. Næstu tónleikar verða haldnir þriðjudaginn 7. maí en þá stígur á svið Sigurgeir Agnarsson sellóleikari ásamt Nínu Margréti Grímsdóttur á píanó.

Málsnúmer 1302338

02

Bréf mennta- og menningarmálaráðuneytisins varðandi ráðstefnuna Menningarlandið 2013, dags. 18.02.13.

Bréf Mennta- og menningarmálaráðuneytisins um ráðstefnuna Menningarlandið i apríl 2013 var lagt fram.

Ráðstefnan var haldin á Höfn í Hornafirði 11. og 12. apríl sl.og fjallaði að stóru leyti um hvernig hafi tekist til með samninga við menningarráð landsbyggðarinnar.

Málsnúmer 1304475

03

Jazzhátíð 2013

Farið var yfir stöðu mála við undirbúning Jazzhátíðar Garðabæjar. Hátíðin verður haldin dagana 25.-28. apríl og er þetta í áttunda sinn sem hún fer fram. Dagskrá hátíðarinnar verður dreift í hús í Garðabæ og einnig er hún kynnt í Garðapóstinum og á vefsíðu Garðabæjar. Íslandsbanki í Garðabæ er áfram styrktaraðili hátíðarinnar.

Málsnúmer 1304603

04

Beiðni um styrk vegna tískusýningar nemenda í fata- og textílhönnun í FG

Bréf nemenda í lokaáfanga í fata- og textílhönnun í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ lagt fram.

Samþykkt var að veita nemendum í lokaáfanga í fata- og textílhönnun styrk að upphæð 55 000 kr vegna undirbúnings og framkvæmd tískusýningar sem verður haldin miðvikudagskvöldið 24. apríl nk og er hluti af lokaáfanga þeirra.

Málsnúmer 1304309

05

Ársskýrsla bókasafns Garðabæjar 2012

Ársskýrsla Bókasafns Garðabæjar lögð fram.

Málsnúmer 1304606

06

Sögugöngur bókasafnsins vor 2013

Greint var frá undirbúningi við Sögugöngur Bókasafns Garðabæjar sem eru fyrirhugaðar að degi til laugardaginn 11. maí og að kvöldi til þriðjudaginn 14. maí nk. Sögugöngur safnsins voru haldnar í fyrsta sinn í fyrra í samstarfi við menningar- og safnanefnd og tókst vel upp. Göngurnar verða kynntar í Garðapóstinum og á vefsíðu Garðabæjar.

Málsnúmer 1304604

07

Jónsmessugleði 2013

Formaður greindi frá fundi sem var haldinn nýverið með forsvarsmönnum Grósku, samtaka myndlistarmanna og áhugamanna um myndlist í Garðabæ. Þar var rætt um ýmis verkefni hjá Grósku á liðnu ári og verkefni framundan eins og árlega Sumarsýningu sem verður opnuð á Garðatorgi að kvöldi til miðvikudaginn 24. apríl. Einnig var rætt um dagsetningar fyrir Jónsmessugleði í sumar og á næstunni verður fundað með Grósku um undirbúning fyrir Jónsmessugleðina. Rætt var um umgjörð Jónsmessugleðinnar og dagskráratriði.
Forsvarsmenn Grósku hafa óskað eftir að koma á fund menningar- og safnanefndar og stefnt er að því að bjóða þeim á næsta fund nefndarinnar.

Málsnúmer 1304580

08

Hvatningarsjóður fyrir unga listamenn 2013

Rætt var um útfærslu á Hvatningarsjóði fyrir unga listamenn og reglur sem hafa verið endurskoðaðar árlega.
Samþykkt var að bæta inn í reglurnar ákvæði um að styrkur úr hvatningarsjóði væri ekki ætlaður til náms eða námskeiða. Auglýst verður eftir umsóknum úr sjóðnum í Garðapóstinum og á vefsíðu Garðabæjar. Farið verður yfir umsóknir í maí og úthlutun úr sjóðnum verður tilkynnt formlega á uppskeruhátíð menningar- og lista í lok maí.

Málsnúmer 1304605

09

Uppskeruhátíð menningar- og lista 2013

Í fyrra var haldin í fyrsta sinn sérstök uppskeruhátíð menningar- og lista þar sem m.a. var tilkynnt um val á bæjarlistamanni, heiðursverðlaun afhent, úthlutað úr hvatningarsjóði ungra listamanna og skrifað undir ýmsa menningarsamninga. Ákveðið er að halda aftur slíka uppskeruhátíð síðdegis fimmtudaginn 30. maí nk í samkomuhúsinu á Garðaholti. Gróska hefur jafnframt boðist til að halda aftur ,,örmyndlistarsýningu" í hlöðunni við Krók við þetta tækifæri. Drög að dagskrá uppskeruhátíðarinnar verða lögð fram á næsta fundi menningar- og safnanefndar. Einnig var rætt um verkefni með fráfarandi bæjarlistamanni Þórunni Clausen sem fyrirhugað er að hafa í síðari hluta maí.

Málsnúmer 1304581

10

Bæjarlistamaður Garðabæjar 2013

Auglýst hefur verið eftir ábendingum um útnefningu á bæjarlistamanni Garðabæjar. Frestur til að skila inn ábendingum er til loka apríl mánaðar. Rætt var um framkvæmd við útnefningu og málið verður áfram rætt á næsta fundi þegar allar ábendingar liggja fyrir.

Málsnúmer 1301541

11

Tónleikar með OMAM

Formaður greindi frá því að vegna ýmissa verkefna hjá hljómsveitinni Of Monsters and Men er í skoðun hvenær best sé að halda tónleika í Garðabæ.