Tónleikar með Of Monsters and Men (OMAM)
Ferill máls
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
01
6. fundur
Farið var yfir hvernig tókst með tónleika hljómsveitarinnar Of Monsters and Men sem voru haldnir laugardaginn 31. ágúst sl. á túninu við Vífilsstaði. Sagt var frá samráðsfundi með fulltrúum lögreglu, Strætó, Vegagerðar, Hjálparsveitar skáta í Garðabæ, tónleikahöldurum og starfsmönnum Garðabæjar þar sem farið var yfir framkvæmdina í heild sinni.
Nefndin þakkar starfsfólki Garðabæjar og öðrum er komu að undirbúningi og skipulagi tónleikanna.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
02
5. fundur
Kári Sturluson tónleikahaldari var gestur fundarins undir 1. lið.
Kári Sturluson greindi nefndarmönnum frá upphafi verkefnisins og hans aðkomu að tónleikunum. Fyrirhugaðir tónleikar verða haldnir laugardaginn 31. ágúst nk. á túninu við Vífilsstaði. Farið var yfir tímasetta dagskrá og umfang og skipulag á svæðinu. Félög í Garðabæ verða með sölu á staðnum og Hjálparsveit skáta í Garðabæ aðstoðar við umferðarstjórnun og gæslu. Rætt var um strætóferðir og gönguleiðir á staðinn. Einnig var rætt um kynningu á viðburðinum, aðkomuleiðir og fleiri fjölmiðlamál. Farið var yfir veðurspá og möguleika ef veður yrði ekki gott. Kára var þakkað fyrir komuna á fundinn.
Bæjarráð Garðabæjar
03
31. fundur

Lagt fram minnisblað, dags. 23.07.2013 varðandi undirbúning tónleika hljómsveitarinnar Of Monsters and Men, sem fyrirhugaðir eru á Vífilsstöðum 31. ágúst n.k.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" /><o:p></o:p>

<o:p> </o:p>

Bæjarstjóri gerði nánari grein fyrir málinu og útskýrði einstaka kostnaðarliði.<o:p></o:p>

Bæjarráð Garðabæjar
04
28. fundur
Bæjarstjóri greindi frá undirbúningi að tónleikum hljómsveitarinnar Of Monsters and Men sem fyrirhugað er að halda 31. ágúst nk. á túninu við Vífilsstaði.
Bæjarráð Garðabæjar
05
22. fundur

Bæjarstjóri gerði grein fyrir undirbúningi tónleika með hljómsveitinni Of Monsters and Men sem fyrirhugaðir eru laugardaginn 31. ágúst 2013. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" /><o:p></o:p>

<o:p> </o:p>

<o:p> </o:p>

Í lok fundar þakkaði formaður Ragnýju Þóru fyrir farsælt samstarf í bæjarráði en Ragný lætur nú af störfum sem bæjarfulltrúi vegna brottflutnings úr bænum. Formaður óskaði Ragnýju Þóru og fjölskyldu hennar velfarnaðar á nýjum vettvangi.<o:p></o:p>

<o:p> </o:p>

Ragný Þóra þakkaði hlý orð í sinn garð og þakkaði bæjarfulltrúum og starfsmönnum ánægjulegt samstarf.<o:p></o:p>

<o:p> </o:p>

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
06
3. fundur
Formaður greindi frá því að vegna ýmissa verkefna hjá hljómsveitinni Of Monsters and Men er í skoðun hvenær best sé að halda tónleika í Garðabæ.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
07
1. fundur
Fimmtudaginn 10. janúar sl. var skrifað undir samning við hljómsveitina Of Monsters and Men um leigu á æfingahúsnæði í Garðabæ. Rætt hefur verið um að skoða þann möguleika að hljómsveitin haldi útitónleika í Garðabæ í lok sumars / byrjun hausts. Á næstunni verður farið í vinnu við að skoða nánar útfærslu og möguleika á slíkum tónleikum.