Beint í efni

28. fundur

09.07.2013
Bæjarráð Garðabæjar

28. fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarráðs á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

09.07.2013

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Stefán Snær Konráðsson - aðalmaður
  • María Grétarsdóttir - aðalmaður
  • Páll Jóhann Hilmarsson - varamaður
  • Kristinn Guðlaugsson - áheyrnarfulltrúi
  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
  • Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
  • Ragnheiður Stefánsdóttir
  • Hulda Hauksdóttir
  • Bergþóra Sigmundsdóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Guðfinna Björk Kristjánsdóttir

Ritari

  • Guðfinna B. Kristjánsdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 1307173

01

Bréf Samorku til iðnaðar- og viðskiptaráðherra varðandi aðgang vatnsveitna að neysluvatni, dags. 02.07.13.

<P style="TEXT-ALIGN: justify; LINE-HEIGHT: normal; MARGIN: 0cm 0cm 0pt 35.4pt" class=MsoNormal>Lagt fram. </P>

Málsnúmer 1307175

02

Bréf Samorku til innanríkisráðherra varðandi innheimtu vatns- og fráveitugjalda, dags. 02.07.13.

<P style="TEXT-ALIGN: justify; LINE-HEIGHT: normal; MARGIN: 0cm 0cm 0pt 35.4pt" class=MsoNormal>Lagt fram.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" /><o:p></o:p></P>

Málsnúmer 1307085

03

Ársreikningur Samtaka sveitarfélga á höfuðborgarsvæðinu fyrir árið 2012, dags. 28.06.13.

Gunnar Einarsson greindi frá helstu verkefnum sem unnið er að á vettvangi SSH.

Ársreikningur lagður fram.

Málsnúmer 1307171

04

Bréf innanríkisráðuneytisins varðandi framlög vegna tekjutaps vegna fasteignaskatts á árinu 2013, dags. 03.07.13.

Lagt fram.

Málsnúmer 1303206

05

Greinargerð forstöðumanns eignadeildar varðandi viðhaldsaðgerðir og rekstur á Garðaholti, dags. 18.03.13.

Gunnar Einarsson bæjarstjóri sagði frá helstu niðurstöðum skoðunar forstöðumanns eignadeildar á húsinu og sagði brýnt að ráðast í aðgerðir til að þétta húsið og tryggja að það leki ekki.
Málinu er vísað til nánari skoðunar við gerð fjárhagsáætlunar 2014.

Málsnúmer 1307185

06

Fundargerð vegna útboða í hljóðmön við Vífilstaðarveg, dags. 02.07.13.

Lögð fram.

Málsnúmer 1306399

07

Lynghólar 3 - Framkvæmdir við vegg við lóðarmörk.

Bæjarstjóri fór yfir málið. Bæjarráð vísar málinu á þessu stigi til nánari athugunar bæjarstjóra og byggingarfulltrúa.

Málsnúmer 1304297

08

Tilboð í leigu á aðstöðu fyrir hárgreiðslustofu í húsnæði Ísafoldar.

Bæjarráð samþykkir tillögu forstöðumanns Ísafoldar um að leita samninga við Ingu Jóhannsdóttur, Engjahlíð 5, Hafnarfirði um aðstöðu fyrir hárgreiðslustofu á Ísafold.

Málsnúmer 1204319

09

Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga til mennta- og menningarmálaráðherra varðandi tilnefningu í starfshóp um rekstur framhaldsskóla, dags. 28.06.13.

Í bréfinu kemur fram að Sambandið hefur tilnefnt Svandísi Ingimundardóttur til setu í starfshópi mennta-og menningarmálaráðuneytisins sem kanna á fýsileika þess að sveitarfélög taki að sér rekstur framhaldsskóla.
Lagt fram.

Málsnúmer 1307176

10

Bréf Samstöðuhópsins Vörn fyrir börn varðandi framlög til þjóðarátaks til aðstoðar þolendum og aðstandendum kynferðisofbeldis,dags. 05.07.13.

Bæjarráð vísar bréfinu til forvarnanefndar og fjölskylduráðs.

Málsnúmer 1301109

11

Afgreiðslur byggingarfulltrúa tímabilið 28.06.-05.07.2013.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslur byggingarfulltrúa á umsóknum um byggingarleyfi fyrir tímabilið 28.06. til 05.07.2013 og verða byggingarleyfi útgefin samkvæmt 2. gr. samþykktar um afgreiðslur byggingarnefndar Garðabæjar nr. 863/2011, sbr. 13. gr. mannvirkjalaga nr. 160/2010. Um er að ræða byggingarleyfi vegna framkvæmda við eftirfarandi byggingar: Ljósakur 2, Ljósakur 4, Engimýri 2, Langalína 28 til 32, Dalprýði 11 og Hraunagata 10.

Málsnúmer 1303014

12

Minnisblað mannauðsstjóra um sumarstörf árið 2013.

Lagt fram minnisblað mannauðsstjóra um sumarstörf 2013 þar sem m.a. kemur fram að gerðir hafa verið um 500 ráðningarsamningar við ungmennni um störf fyrir Garðabæ.

Málsnúmer 2010010083

13

Bréf Heilbrigðiseftirlitsins varðandi aðgerðaáætlun gegn hávaða 2013-2018 í Garðabæ, dags. 02.07.13.

Í bréfinu kemur fram að heilbrigðisnefnd veitir jákvæða umsögn um erindi Garðabæjar varðandi aðgerðaráætlun í hávaðamálum 2013 til 2018.
Lagt fram.

Málsnúmer 1301541

14

Tónleikar með OMAM

Bæjarstjóri greindi frá undirbúningi að tónleikum hljómsveitarinnar Of Monsters and Men sem fyrirhugað er að halda 31. ágúst nk. á túninu við Vífilsstaði.