Beint í efni

6. fundur

09.09.2013
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

6. fundur

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

09.09.2013

Kl. 16:30 - 16:30

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Birna Ólafsdóttir - aðalmaður
  • Björn Már Ólafsson - aðalmaður
  • Sigurjóna Sverrisdóttir - aðalmaður
  • Kristín B Björgvinsdóttir - varamaður
  • Hulda Hauksdóttir - upplýsingafulltrúi

Ritari

  • Hulda Hauksdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 1301541

01

Tónleikar með Of Monsters and Men (OMAM)

Farið var yfir hvernig tókst með tónleika hljómsveitarinnar Of Monsters and Men sem voru haldnir laugardaginn 31. ágúst sl. á túninu við Vífilsstaði. Sagt var frá samráðsfundi með fulltrúum lögreglu, Strætó, Vegagerðar, Hjálparsveitar skáta í Garðabæ, tónleikahöldurum og starfsmönnum Garðabæjar þar sem farið var yfir framkvæmdina í heild sinni.
Nefndin þakkar starfsfólki Garðabæjar og öðrum er komu að undirbúningi og skipulagi tónleikanna.

Málsnúmer 1308691

02

Beiðni um styrk vegna myndlistarsýningar

Bréf frá Guðmundi W. Vilhjálmssyni dags.29.08.13 um styrkbeiðni vegna myndlistarsýningar í Gróskusalnum lagt fram. Nefndin getur ekki orðið við styrkbeiðni þessari vegna frágangs á myndum í tengslum við listsýningu í Gróskusalnum.
Framlag bæjarins til sýninga í Gróskusalnum felst í samkomulagi við félagið Grósku um afnot af húsnæði til félags- og sýningastarfs.

Málsnúmer 1106161

03

Myndlistarverk við sundlaugina í Ásgarði

Tölvubréf frá Birgi Rafni Friðrikssyni dags.02.09.13 vegna endaloka myndlistargjörnings við sundlaugina í Ásgarði lagt fram.
Rætt var um hvernig til tókst með myndlistargjörninginn. Málið verður skoðað nánar og rætt við listamanninn.

Málsnúmer 1309209

04

Umsóknir um vinnuaðstöðu í Króki 2013-2014

Auglýst var eftir umsóknum um vinnuaðstöðu í Króki í ágúst. Lagt er til að eftirtalinn listamaður fái vinnuaðstöðu í Króki í haust:Elín Guðmundsdóttur, kt. 070459-3889, myndlistarmaður og myndmenntakennari, til heimilis að Suðurgötu 49, Hafnarfirði, tímabilið 16. sept-16.des 2013.
Auglýst verður aftur eftir umsóknum fyrir vorönn.

Málsnúmer 1309206

05

Þriðjudagsklassík

Formaður greindi frá fundi með Ingibjörgu Guðjónsdóttur núverandi bæjarlistamanni og listrænum stjórnanda tónleikaraðarinnar Þriðjudagsklassík sem fór fram á vormánuðum. Tónleikarnir í vor voru haldnir við góðar undirtektir í sal Tónlistarskóla Garðabæjar. Lagt var fram minnisblað frá Ingibjörgu Guðjónsdóttur um framhald á tónleikaröðinni og mismunandi útfærslur í tengslum við það. Samþykkt var að halda áfram samstarfi við Ingibjörgu um tónleikaröðina og miðað við að hafa þrenna tónleika á vorönn 2014.

Málsnúmer 1210177

06

Menningarverkefni 2013 - ýmislegt

Umræðu um menningarverkefni á þessari önn og næstu haldið áfram frá síðasta fundi. Áfram er stefnt að því að hafa Jazzhátíð Garðabæjar, þriðjudagsklassík og listadaga barna og ungmenna á næstu önn. Framundan á þessu ári er haustvaka Kvennakórs Garðabæjar sem er hluti af samstarfssamningi við kórinn. Önnur verkefni sem voru rædd voru þátttaka í Safnanótt, Jónsmessugleði, samstarf við Hönnunarsafn Íslands, skoðun á samstarfi við félagið Dægradvöl o.fl.