Beint í efni

Menningarverkefni 2013 - ýmislegt

Málsnúmer 1210177

Ferill máls

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

01

6. fundur

Umræðu um menningarverkefni á þessari önn og næstu haldið áfram frá síðasta fundi. Áfram er stefnt að því að hafa Jazzhátíð Garðabæjar, þriðjudagsklassík og listadaga barna og ungmenna á næstu önn. Framundan á þessu ári er haustvaka Kvennakórs Garðabæjar sem er hluti af samstarfssamningi við kórinn. Önnur verkefni sem voru rædd voru þátttaka í Safnanótt, Jónsmessugleði, samstarf við Hönnunarsafn Íslands, skoðun á samstarfi við félagið Dægradvöl o.fl.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

02

5. fundur

Skapandi sumarstarf
Rætt var um starfsemi skapandi sumarstarfs og uppskeruhátíð þeirra sem var mjög flott. Skýrsla um starfið verður unnin fyrir fræðslu- og menningarsvið til að fara yfir það sem var vel gert og hvað má betur fara.

Tónlistarverkefni í haust
Umræðum um verkefni haustsins verður haldið áfram á næsta fundi menningar- og safnanefndar um miðjan september.

Krókur
Krókur hefur verið opinn almenningi á sunnudögum í sumar og auk þess hefur listakona sem var með vinnuaðstöðu í Króki sýnt bæinn á öðrum tímum. Auglýst verður eftir umsóknum um vinnuaðstöðu í Króki fyrir næsta vetur og umsóknir teknar fyrir á næsta fundi.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

03

2. fundur

Umræður um verkefni á sviði menningarmála á árinu 2013. Áframhald umræðu frá síðasta fundi.

Farið var yfir ýmsa viðburði og venjur á sviði menningarmála á Álftanesi. Kristín Fjóla Bergþórsdóttir lagði fram stutt yfirlit og fór yfir helstu viðburði sem hafa verið á vegum sveitarfélagsins og einnig á vegum félaga yfir árið. Umræður voru um brennur og framkvæmd þeirra.

Lagt var fram vinnublað með yfirliti um helstu menningarverkefni og viðburði framundan á þessu ári og umræður voru um verkefnin.

Meðal atriða sem farið var yfir var endurnýjun á samstarfssamningi við Kvennakór Garðabæjar og rætt var um starfssemi kórsins og aðra kórastarfssemi í bænum.

Umræður voru um val á bæjarlistamanni og stefnt að því að auglýsa eftir ábendingum um bæjarlistamann í mars.

Í mars er stefnt að Söguferð um Álftanesið fyrir eldri borgara og í skoðun er útfærsla á leiksýningu með bæjarlistamanni Garðabæjar fyrir skólahópa og almenning á vorönn (mars/apríl).

Fyrstu tónleikar klassískrar tónleikaraðar þar sem Ingibjörg Guðjónsdóttir er listrænn stjórnandi verða þriðjudaginn 2. apríl.

Jazzhátíð Garðabæjar sem verður haldin í lok apríl er í undirbúningi og drög að dagskrá liggja fljótlega fyrir.

Stefnt að því að halda uppskeruhátíð menningar- og lista í lok maí með svipuðum hætti og í fyrra.

Rætt var um samstarfssamning við Grósku og Jónsmessugleði og formaður og upplýsingafulltrúi munu kalla eftir fundi með fulltrúum stjórnar Grósku til að fara yfir undirbúning að Jónsmessugleði.

Rætt var um Hvatningarsjóð fyrir unga listamenn og endurskoðun á reglum sjóðsins og einnig var rætt um hvort tengja ætti það að einhverju leyti við Skapandi sumarstarf ungmenna.

Einnig var rætt um styrkúthlutanir menningar- og safnanefndar og að stefnt skuli að því að auglýsa eftir umsóknum um samstarf og/eða styrki amk tvisvar á ári á vorönn (miðjan mars) og í byrjun haustannar.

Skoðað verður á næstunni hvernig best er að hafa útfærslu á útitónleikum með hljómsveitinni Of Monsters and Men í byrjun hausts.

Stefnt verður að því að halda opinn fund menningar- og safnanefndar um menningarmál í haust.

Listadagar barna og ungmenna verða haldnir næst vorið 2014 og undirbúningur fer af stað á þessu ári. Rætt var um hvort hægt væri að hafa einhverja viðburði og/eða smiðjur fyrir fjölskyldur á því ári sem listadagar eru ekki haldnir.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

04

1. fundur

Gert er ráð fyrir að halda Jazzhátíð Garðabæjar í lok apríl eða í kringum Sumardaginn fyrsta. Sigurður Flosason tónlistarmaður verður áfram listrænn stjórnandi og er farinn að huga að dagskrá. Búið er að taka frá ýmsa sali en skoðað verður nánar hvort hægt verði að vera með tónleika/atriði víðar en í fyrra, s.s. í Haukshúsi eða annars staðar.
Áslaug Hulda Jónsdóttir formaður og Hulda Hauksdóttir upplýsingafulltrúi áttu fund nýverið með Þórunni E. Clausen leikkonu og núverandi bæjarlistamanni. Rædd var hugmynd um að sýna Ferðasögu Guðríðar fyrir nemendur og almenning á vorönn. Nefndarmenn tóku vel í þessa hugmynd sem verður útfærð nánar og kynnt skólum. Einnig var rætt um viðburðadagatal fyrir menningu í Garðabæ og upplýsingafulltrúi mun skoða það nánar.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

05

6. fundur

Rætt var um ýmis verkefni nefndarinnar á næsta ári, s.s. jazzhátíð, útitónleika o.fl. Áslaug Hulda formaður ræddi hugmynd um að gera ungum hönnuðum sem eru búsettir og/eða tengjast Garðabæ sérstök skil með einhverjum hætti, t.d. með sýningu. Rætt var nánar um þá hugmynd og athugað verður betur hvernig hægt væri að framkvæma hana. Einnig var rætt um að skoða möguleika á samstarfsverkefnum með bæjarlistamanni Garðabæjar. Lagt var fram minnisblað um vinnureglur og mismunandi útfærslur á úthlutun menningarstyrkja hjá nágrannasveitarfélögum. Rætt var um hvernig þessum málum hefur verið háttað hjá nefndinni. Umræðu um hvernig skuli standa að þessu framvegis verður haldið áfram á næsta fundi.