Beint í efni

6. fundur

16.10.2012
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

6. fundur

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

16.10.2012

Kl. 16:15 - 16:30

Um fundinn

Nefndarmenn

• Áslaug Hulda Jónsdóttir - Formaður
• Steinunn Vala Sigfúsdóttir - Aðalmaður
• Birna Ólafsdóttir - Aðalmaður
• Sigurjóna Sverrisdóttir - Aðalmaður

Ritari

• Hulda Hauksdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 1201151

01

Tónlistarskóli Garðabæjar - kynning

Laufey Ólafsdóttir skólastjóri Tónlistarskóla Garðabæjar var gestur undir 1. lið fundarins.

Áslaug Hulda Jónsdóttir formaður bauð nýjan skólastjóra Tónlistarskólans Laufeyju Ólafsdóttur velkomna á fundinn. Laufey tók nýverið við starfi skólastjóra Tónlistarskólans og kynnti starf skólans í stuttu máli.  Um 430 nemendur stunda nám í Tónlistarskóla Garðabæjar við fjórar deildir.  Tvær strengjasveitir eru starfandi og boðið er upp á masterclass einu sinni í mánuði fyri rmismunandi deildir skólans. Rætt var um sumarvinnu ungmenna tengdum listum og tvö ungmenni í Tónlistarskólanum hafa fengið sumarlaun við að stunda æfingar og spila opinberlega. Laufey sagði frá því að Big-band hefur verið starfandi frá hausti og mun m.a. spila í laufabrauðsbakstri grunnskólanna. Með því er ætlunin að reyna vekja áhuga á blásturshljóðfærum meðal nemenda og ekki síst foreldra. Laufey hefur farið í heimsókn í grunnskóla bæjarins til að kynna starfsemi Tónlistarskólans.  Vilji er til að reyna að opna skólann meira fyrir bæjarbúa og ýmsar hugmyndir í þeim efnum verða skoðaðar, m.a. hvort hægt verði að bjóða upp á námskeið í jazz-sögu fyrir almenning og námskeið í söng fyrir eldri borgara.  Rætt var um gæði tónlistarkennslu almennt í tónlistarskólum á Íslandi, lög um Tónlistarskóla og vel menntaða kennara.  Nefndin lýsti sig reiðubúna til samstarfs við Tónlistarskólann um menningarverkefni í framtíðinni.

Málsnúmer 1208527

02

Tónlistarveisla í skammdeginu 2012

Hin árlega Tónlistarveisla í skammdeginu verður haldin fimmtudaginn 1. nóvember nk. á Garðatorgi.  Hljómsveitin Jet Black Joe spilar á tónleikunum en hljómsveitin heldur upp á 20 ára afmæli sitt um þessar mundir. Greint var frá undirbúningi og rætt var um kynningarmál.  Myndlistarmenn í Grósku ætla að vera með opið hús þetta kvöld í Gróskusalnum á Garðatorgi og myndlistarsýningu sem stendur í nokkra daga á eftir fyrir almenning.

Málsnúmer 1203686

03

Tónleikar með Óp-hópnum

Farið var yfir stöðu mála varðandi tónleikahald með Óp-hópnum. Tónleikarnir verða haldnir í safnaðarheimilinu fimmtudagskvöldið 15. nóvember nk. Rætt var um kynningarmál og miðaverð sem var ákveðið 1500 kr.

Málsnúmer 1210178

04

Umferðarleikrit fyrir grunnskóla

Upplýsingafulltrúi sagði frá fundi í lok sumars með leikurum sem standa að verkinu þar sem þau kynntu hugmyndina að umferðarleikriti fyrir yngstu bekki grunnskóla.  Umferðarstofa og Sjóvá eru bakhjarlar verkefnisins sem fer af stað sem tilraunaverkefni nú í haust. Samþykkt var að taka þátt í verkefninu í samstarfi við fræðslu- og menningarsvið Garðabæjar og bjóða öllum skólum í Garðabæ að fá leikritið til sýninga í haust.

Málsnúmer 1210093

05

Hugmynd um tónleikaröð í Garðabæ

Áslaug Hulda Jónsdóttir formaður sagði frá fundi með Ingibjörgu Guðjónsdóttur söngkonu og kórstjóra þar sem farið var yfir hugmynd Ingibjargar um klassíska tónleikaröð í sal Tónlistarskóla Garðabæjar á vorönn. Farið var yfir meðfylgjandi gögn um hugsanlega tónleikaröð. Rætt var um hugmyndina og fjölda tónleika og nefndin var jákvæð gagnvart því að fara af stað með verkefnið.
Einnig var rætt um kostnað og möguleika á að fá styrktaraðila fyrir þetta verkefni.    Rætt verður nánar við Ingibjörgu Guðjónsdóttur um framkvæmd þessa verkefnis í samræmi við umræður á fundinum.

Málsnúmer 1210134

06

Safnanótt 2013

Safnanótt verður haldin næst föstudaginn 8. febrúar með þátttöku safna á öllu höfuðborgarsvæðinu.  Garðabær tók þátt í Safnanótt í byrjun þessa árs með vel heppnaðri dagskrá í Bókasafni Garðabæjar, Hönnunarsafninu og í Króki á Garðaholti. Safnanótt er hluti af Vetrarhátíð sem Höfuðborgarstofa hefur umsjón með og nýverið var samþykkt að hafa þemað Magnað myrkur sem fasta yfirskrift hátíðarinnar. Söfnin í Garðabæ hafa haft með sér samráð um dagskrá á þessu kvöldi.

Rætt var um hugmyndir að dagskrá í Garðabæ þetta kvöld og mikilvægi þess að huga að því að bjóða upp á fjölskylduvæna dagskrá. Samstarf við leiklistardeild FG tókst vel til á síðustu Safnanótt og gott væri ef hægt væri að halda því áfram með einhverjum hætti næst. Einnig var rætt nokkuð ítarlega um menningu, hönnun og listir fyrir börn og þá sérstaklega hönnun leikfanga og hugmyndir því tengdu, s.s. sýningar, fyrirlestra og fleira. Skoðað verður nánar hvort hægt sé að tengja þessar hugmyndir við Safnanótt næst eða á öðrum vettvangi.

Málsnúmer 1210177

07

Verkefnin framundan

Rætt var um ýmis verkefni nefndarinnar á næsta ári, s.s. jazzhátíð, útitónleika o.fl.  Áslaug Hulda formaður ræddi hugmynd um að gera ungum hönnuðum sem eru búsettir og/eða tengjast Garðabæ sérstök skil með einhverjum hætti, t.d. með sýningu. Rætt var nánar um þá hugmynd og athugað verður betur hvernig hægt væri að framkvæma hana.  Einnig var rætt um að skoða möguleika á samstarfsverkefnum með bæjarlistamanni Garðabæjar.

Lagt var fram minnisblað um vinnureglur og mismunandi útfærslur á úthlutun menningarstyrkja hjá nágrannasveitarfélögum.  Rætt var um hvernig þessum málum hefur verið háttað hjá nefndinni.  Umræðu um hvernig skuli standa að þessu framvegis verður haldið áfram á næsta fundi.

Málsnúmer 1201151

08

Önnur mál

Myndlistarsýning
Boðskort og sýningarskrá fyrir myndlistarsýningu Ragnheiðar Jónsdóttur í Listasafni ASÍ í október lagt fram.

Verkefni fræðslu- og kynningarfulltrúa
Greint var námskeiðum/námsstefnum á haustönn og vorönn sem fræðslu- og kynningarfulltrúi list-, iðn- og hönnunar hefur umsjón með og eru ætluð kennurum og hönnuðum.  Einnig var lögð fram starfsskýrsla fræðslu- og kynningarfulltrúa. Upplýsingar um verkefnin verða innan tíðar aðgengileg á heimasíðu Garðabæjar.