Beint í efni

Tónlistarskóli Garðabæjar - kynning

Málsnúmer 1201151

Ferill máls

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

01

6. fundur

Laufey Ólafsdóttir skólastjóri Tónlistarskóla Garðabæjar var gestur undir 1. lið fundarins.

Áslaug Hulda Jónsdóttir formaður bauð nýjan skólastjóra Tónlistarskólans Laufeyju Ólafsdóttur velkomna á fundinn. Laufey tók nýverið við starfi skólastjóra Tónlistarskólans og kynnti starf skólans í stuttu máli. Um 430 nemendur stunda nám í Tónlistarskóla Garðabæjar við fjórar deildir. Tvær strengjasveitir eru starfandi og boðið er upp á masterclass einu sinni í mánuði fyri rmismunandi deildir skólans. Rætt var um sumarvinnu ungmenna tengdum listum og tvö ungmenni í Tónlistarskólanum hafa fengið sumarlaun við að stunda æfingar og spila opinberlega. Laufey sagði frá því að Big-band hefur verið starfandi frá hausti og mun m.a. spila í laufabrauðsbakstri grunnskólanna. Með því er ætlunin að reyna vekja áhuga á blásturshljóðfærum meðal nemenda og ekki síst foreldra. Laufey hefur farið í heimsókn í grunnskóla bæjarins til að kynna starfsemi Tónlistarskólans. Vilji er til að reyna að opna skólann meira fyrir bæjarbúa og ýmsar hugmyndir í þeim efnum verða skoðaðar, m.a. hvort hægt verði að bjóða upp á námskeið í jazz-sögu fyrir almenning og námskeið í söng fyrir eldri borgara. Rætt var um gæði tónlistarkennslu almennt í tónlistarskólum á Íslandi, lög um Tónlistarskóla og vel menntaða kennara. Nefndin lýsti sig reiðubúna til samstarfs við Tónlistarskólann um menningarverkefni í framtíðinni.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

02

6. fundur

Myndlistarsýning
Boðskort og sýningarskrá fyrir myndlistarsýningu Ragnheiðar Jónsdóttur í Listasafni ASÍ í október lagt fram.

Verkefni fræðslu- og kynningarfulltrúa
Greint var námskeiðum/námsstefnum á haustönn og vorönn sem fræðslu- og kynningarfulltrúi list-, iðn- og hönnunar hefur umsjón með og eru ætluð kennurum og hönnuðum. Einnig var lögð fram starfsskýrsla fræðslu- og kynningarfulltrúa. Upplýsingar um verkefnin verða innan tíðar aðgengileg á heimasíðu Garðabæjar.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

03

5. fundur

Suzuki nám í Tónlistarskóla Garðabæjar
Birna Ólafsdóttir lýsti yfir sérstakri ánægju með að nú sé boðið upp á Suzuki nám í Tónlistarskóla Garðabæjar. Rætt var um að fá skólastjóra Tónlistarskóla Garðabæjar á fund menningar- og safnanefndar fljótlega til að kynna starfssemi skólans og samstarf á sviði menningarmála.

Tónleikar í Vídalínskirkju
Greint var frá minningartónleikum um Loft Brandsson sem verða haldnir í Vídalínskirkju þriðjudaginn 11. september nk. Fram koma margir þekktir tónlistarmenn þar á meðal Pétur Ben, Ómar og Óskar Guðjónssynir.

Sumarlestur Bókasafns Garðabæjar
Greint var frá sumarlestri bókasafnsins sem nú var haldinn í tíunda sinn. Fjölmenn og skemmtileg uppskeruhátíð fór fram á safninu mánudaginn 20. ágúst sl.

Starf menningar- og safnanefndar
Rætt var stuttlega um starf nefndarinnar almennt og hvert skal stefna á næstu árum. Rætt var um hvernig hægt er að efla sérstaklega menningarstarf fyrir börn og unglinga í Garðabæ umfram það sem nú þegar er gert.

Hvatningarsjóður ungmenna
Silja Hinriksdóttir sem fékk úthlutaðan styrk úr hvatningarsjóði heldur myndlistarsýningu í Gróskusalnum sem stendur yfir dagana 6.-9. september. Rætt var um að fá nánari útlistun á því hvernig til hefur tekist með þau verkefni sem fengu úthlutun úr hvatningarsjóðnum.

Næsti fundur
Ákveðið að halda fund næst þriðjudaginn 25. september nk. kl. 16:30.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

04

3. fundur

Sagt var frá vel heppnaðri sögugöngu laugardaginn 5. apríl sl. þegar Kristín Helga Gunnarsdóttir rithöfundur fór í göngu um Silfurtúnið. Framundan er söguganga þriðjudaginn 8. maí með Einari Má Guðmundssyni um Vífilsstaði.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

05

2. fundur

Stefnt að því að halda næsta fund mánudaginn 7. maí nk.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

06

1. fundur

Farið var yfir fjárveitingar til nefndarinnar og möguleika á viðbótarverkefnum. Rætt var um ýmis verkefni eins og menningargöngur í samstarfi við Bókasafn Garðabæjar, menningaruppákomur utandyra, samstarf við Grósku um Jónsmessugleði og möguleika í tengslum við þá hátíð.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

07

1. fundur

Rædd var hugmynd að tónleikum sem hægt væri að halda í mars eða maí. Verkefnið verður skoðað nánar og kynnt betur á næsta fundi.