2. fundur
2. fundur
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
í miðrými 3. hæð á bæjarskrifstofum Garðabæjar við Garðatorg
27.03.2012
Kl. 16:00 - 16:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - Formaður
- Björn Már Ólafsson - Aðalmaður
- Sigurjóna Sverrisdóttir - Aðalmaður
- Kristín B Björgvinsdóttir - Varamaður
Ritari
- Hulda Hauksdóttir
Dagskrá
Málsnúmer 1201084
01
Jazzhátíð Garðabæjar 2012

Jazzhátíð Garðabæjar verður að þessu sinni haldin dagana 17-20. maí. Greint var frá hugmyndum að dagskrá og nefndarmenn voru sammála um að myndu henta vel. Rætt var um tónleikasali en áfram er gert ráð fyrir að einir tónleikar fari fram í hátíðarsal FG en aðrir í safnaðarheimili og/eða Tónlistarskóla Garðabæjar. Áfram verður unnið að undirbúningi hátíðarinnar í samvinnu við Sigurð Flosason listrænan stjórnanda.

Málsnúmer 2011030184
03
Hvatningarsjóður til ungra listamanna

Samkvæmt minnisblaði um uppskeruhátíð menningar- og lista sem lagt var fram undir 2. lið er gert ráð fyrir að úthlutun úr Hvatningarsjóði til ungra listamanna fari fram á uppskeruhátíð í lok maí. Auglýst verður eftir umsóknum úr sjóðnum fljótlega og gert ráð fyrir að veita allt að þrjá styrki að hámarki 150 þúsund krónur hver í ár. Tillögur um orðalagsbreytingu í reglum um sjóðinn verða sendar til bæjarráðs.

Málsnúmer 1203685
04
Bókmenntagöngur í samstarfi við Bókasafn Garðabæjar

Greint var frá hugmyndum um samstarf við Bókasafnið um sögugöngur sem áður hefur verið rætt um og tillögur um að fá ákveðna höfunda til að leiðsegja í sögugöngunum. Nefndarmönnum leist vel á þessar frumhugmyndir og verður unnið nánar úr þeim. Gert er ráð fyrir tveimur sögugöngum í byrjun maí.

Málsnúmer 1203686
05
Tónleikar með Óp-hópnum

Hulda Hauksdóttir upplýsingafulltrúi sagði frá fundi með Erlu Björg Káradóttur og hugmynd að tónleikum með Óp-hópnum. Ekki hefur tekist að finna heppilega dagsetningu í þetta verkefni á vorönn og skoðað verður nánar hvort hægt sé að stefna að þessum tónleikum í byrjun haustannar.

Málsnúmer 1203687
06
Menningarstyrkir almennt

Rætt var almennt um styrkveitingar til menningarmála og hvernig það væri kynnt og/eða auglýst. Skoðað verður nánar hvernig fyrirkomulagi varðandi slíkt er háttað hjá öðrum sveitarfélögum og umræðu haldið áfram síðar.

Málsnúmer 1203688
07
Samstarf við Grósku
Þóra Einarsdóttir nýkjörin formaður Grósku og Laufey Jensdóttir varaformaður Grósku komu á fundinn.

Formaður bauð þær Þóru og Laufeyju velkomna á fundinn. Þær greindu frá starfsemi Grósku sem eru samtök myndlistarmanna og áhugafólks um myndlist í Garðabæ og á Álftanesi. Í Grósku eru um 63 félagar og samtökin hafa á undanförnum árum staðið fyrir fjölmörgum menningarviðburðum bæði fyrir almenning og eins fyrir félagsmenn. Í fyrra var gerður formlegur samstarfssamningur við Grósku og samtökin hafa nú afnot af sal fyrir félagsmenn á Garðatorgi sem þau hafa nýtt vel til ýmissa verka. Meðal fastra viðburða hjá Grósku eru sumarsýning á Garðatorgi, Jónsmessugleði fyrir bæjarbúa, listasýning í tengslum við Tónlistarveislu auk vísis að listaverkamarkaði í desember. Mikill hugur er í félagsmönnum um að efla starfið enn meira og rætt var um ýmsar hugmyndir til framtíðar og sýn Grósku um að Garðabær þyrfti að eignast sýningarsal fyrir myndlist. Nefndarmenn þökkuðu þeim Þóru og Laufeyju fyrir góða kynningu og vel unnið starf hjá Grósku við að efla menningarlífið í bænum.

Málsnúmer 1201151
08
Næsti fundur

Stefnt að því að halda næsta fund mánudaginn 7. maí nk.