Beint í efni

Samstarf við Grósku

Málsnúmer 1203688

Ferill máls

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

01

4. fundur

<DIV>Gróska hélt nýverið vel heppnaða sumarsýningu á Garðatorgi sem var vel sótt.  Undirbúningur fyrir Jónsmessugleði í júní er hafinn hjá Gróskufélögum. Fulltrúar úr stjórn Grósku munu koma síðar á fund með menningar- og safnanefnd til að ræða samstarfið og menningarmál almennt.</DIV>

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

02

2. fundur

Þóra Einarsdóttir nýkjörin formaður Grósku og Laufey Jensdóttir varaformaður Grósku komu á fundinn.

<DIV><DIV><DIV>Formaður bauð þær Þóru og Laufeyju velkomna á fundinn.  Þær greindu frá starfsemi Grósku sem eru samtök myndlistarmanna og áhugafólks um myndlist í Garðabæ og á Álftanesi.  Í Grósku eru um 63 félagar og samtökin hafa á undanförnum árum staðið fyrir fjölmörgum menningarviðburðum bæði fyrir almenning og eins fyrir félagsmenn.  Í fyrra var gerður formlegur samstarfssamningur við Grósku og samtökin hafa nú afnot af sal fyrir félagsmenn á Garðatorgi sem þau hafa nýtt vel til ýmissa verka.  Meðal fastra viðburða hjá Grósku eru sumarsýning á Garðatorgi, Jónsmessugleði fyrir bæjarbúa, listasýning í tengslum við Tónlistarveislu auk vísis að listaverkamarkaði í desember. Mikill hugur er í félagsmönnum um að efla starfið enn meira og rætt var um ýmsar hugmyndir til framtíðar og sýn Grósku um að Garðabær þyrfti að eignast sýningarsal fyrir myndlist.  Nefndarmenn þökkuðu þeim Þóru og Laufeyju fyrir góða kynningu og vel unnið starf hjá Grósku við að efla menningarlífið í bænum. </DIV></DIV></DIV>